Albumm

Raven gefur út plötuna 229

Ritstjórn Albúmm.is skrifar
Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir gengur undir nafninu RAVEN.
Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir gengur undir nafninu RAVEN.

Söngkonan RAVEN sendir frá sér EP plötu í dag. Platan heitir 229 og samanstendur af fimm lögum. 

 Lögin heita Hjartað tók kipp, Not the Same, Half of me, Toxic og Maybe.

Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir er ungur lagahöfundur og tónlistarkona sem hefur áður verið í hljómsveitinni White Signal og fer núna fyrir bandinu Náttsól ásamt því að gefa út sitt sólóefni undir nafninu RAVEN. 

Hrafnhildur hefur áður gert það gott með lögunum Half of me, Toxic og Hjartað tók kipp sem naut mikilla vinsælda á öldum ljósvakans.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×