Lífið

1. apríl 2021: Fríar þyrluferðir, lítið notuð kynlífstæki og óvænt bóluefni í boði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Fjöldi Íslendinga féll fyrir aprílgöbbum í ár.
Fjöldi Íslendinga féll fyrir aprílgöbbum í ár. Vísir

Fólk og fyrirtæki keppast gjarnan við að reyna að láta fólk hlaupa apríl á fyrsta degi þessa herrans mánaðar sem er í dag. Þótt almenna reglan hafi í gegnum tíðina verið sú að reyna að fá fólk til að hlaupa apríl í orðsins fyllstu merkingu, það er í tíma og rúmi, þá hafa göbbin í ár líkt og í fyrra mörg einkennst af því að vera á rafrænu formi með einum eða örðum hætti í ljósi kórónuveirufaraldursins.

Aprílgabb Vísis birtist í frétt í morgun þar sem leitað var að fjórða meðlimnum fyrir nýja þáttaröð af raunveruleikaþættinum Æði sem slegið hefur í gegn á Stöð 2. 

Tæplega þrjú þúsund manns létu blekkjast og ýttu á ábendingahnapp sem fylgdi fréttinni. Margir þeirra sendu fínustu ábendingar um þá sem þeir töldu geta slegið í gegn í þáttunum.

Tik Tok-notandinn @bara_palli skrásetti það þegar hann féll fyrir Vísisgabbinu:

@bara_palli

Ég hef aldrei verið eins svikinn...eins gott að ég fái cameo í seríu 3 @patrekurjaimee @binniglee @bassi_maraj ##fyp ##æði2 ##funny ##iceland ##aprilfools

original sound - Bara Palli

Þyrluferð og Cocoa Puffs

Þá birti Fréttablaðið í morgun frétt þar sem segir frá því að Þórarinn Ævarsson, eigandi pítsustaðarins Spaðans og fyrrverandi framkvæmdastjóri IKEA, hafi stofnað þyrluþjónustuna Þyrluspaðann og hyggist bjóða upp á ódýrar þyrluferðir yfir eldgosið í Geldingadölum.

„Til að fagna páskum býður Fréttablaðið tíu lesendum að fljúga með Spaðaásnum að eldstöðvunum. Með því að senda tölvupóst á [email protected] fer viðkomandi í pott sem dregið verður úr klukkan fimm í dag. Fyrsta ferð er áætluð í fyrramálið klukkan 6.30,“ segir í aprílgabbi Fréttablaðsins.

DV sagði frá því að birgjar og endursöluaðilar muni sitja uppi með gríðarlegan lager af bæði Cocoa Puffs og Lucky Charms eftir að fréttir bárust af því að morgunkornin vinsælu yrðu tekin af markaði vegna nýrrar Evrópureglugerðar. Haft er eftir vörumerkjastjóra í frétt DV að sé ekki annað í stöðunni en að gefa lagerinn sem til er af morgunkorninu. „Hægt verður að nálgast pakkanna í þjónustuveri innflytjandans á Korputorgi í dag til 15:00 og á Glerártorgi á Akureyri til 14:00,“ segir í fréttinni.

Lítið notuð „leikföng“

Þá sagðist Mjölnir MMA á Facebook síðu sinni vera komið í samstarf við Landspítalann um bólusetningu með 400 skömmtum af bóluefni AstraZeneca fyrir meðlimi Mjölnis.

Kynlífstækjaverslunin Losti auglýsti einnig „lítið notuð kynlífstæki á frábæru verði,“ sem hægt væri að koma og versla í verslun fyrirtækisins í Borgartúni.

Á samfélagsmiðlum rifjuðu sumir upp gamalt aprílgabb, meðal annars þetta hér frá árinu 2001, þegar fjölmiðlar féllu sjálfir fyrir aprílgabbi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×