Albumm

Bistro Boy með nýtt lag ásamt Jess McAvoy

Ritstjórn Albumm skrifar
Bistro Boy og PETE.
Bistro Boy og PETE.

Tónlistamaðurinn Bistro Boy hefur sent frá sér lagið Shifting, fyrsta singulinn af væntanlegri plötu sem kemur út 10. mars.

Bistro Boy er hliðarsjálf tónlistarmannsins Frosta Jónssonar en frá því að hann gaf út sína fyrstu plötu, EP plötuna Sólheimar árið 2012, hefur hann sent frá sér breiðskífurnar Píanó í þokunni (2018), Svartir Sandar (2016), Journey (2013) auk EP platna og singla.

Lagið er sungið af PETE (Jess McAvoy). Jess er non-binary (kynsegin) frá Ástralíu,  búsett í Bandaríkjunum. 

Hægt er að hlusta á allar útgáfur Bistro Boy á Spotify og fylgjast nánar með á Facebook og Instagram.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×