Breytileg átt og rigning, slydda eða snjókoma Atli Ísleifsson skrifar 17. febrúar 2021 07:46 Búist er við að dragi úr úrkomu síðdegis. Vísir/Vilhelm Spáð er breytilegri átt á landinu í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, og rigningu, slyddu eða snjókomu. Hiti verður um eða yfir frostmarki.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Veðurstofunni. Búist er við að dragi úr úrkomu síðdegis, og stytti jafnframt upp á norðaustanverðu landinu. „Áfram hægur vindur í fyrramálið og lítilsháttar skúrir eða él, en eftir hádegi á morgun verður úrkomulaust að kalla á landinu og það birtir víða til. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en vægt frost fyrir norðan. Annað kvöld er síðan útlit fyrir að það frysti um allt land,“ segir í tilkynningunni. Óvissustig vegna ofanflóðahættu erí gildi á Austurlandi, en samkvæmt upplýsingum frá ofanflóðasérfræðingi á Veðurstofunni hafa ekki borist neinar tilkynningu um ofanflóð. Spákortið fyrir hádegið. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan 3-10 m/s og yfirleitt þurrt, en stöku skúrir eða él við suður- og austurströndina. Bætir heldur í vind síðdegis. Hiti um og undir frostmarki. Á laugardag: Norðaustan 8-15 og rigning eða slydda með köflum, en suðaustanátt síðdegis. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag: Austlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt og bjart veður vestantil. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Suðlæg eða breytileg átt og þurrt að kalla, en víða dálitlar skúrir eða él við ströndina. Hiti um og yfir frostmarki. Á þriðjudag: Útlit fyrir austlæga átt með vætu í flestum landshlutum. Heldur hlýnandi.
Veður Mest lesið Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Fleiri fréttir Viðvaranirnar sumar orðnar appelsínugular Allhvöss suðvestanátt og hlýtt en illviðri á morgun Suðvestan hvassviðri norðan- og austantil Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Suðvestan stormur, rigning og gular viðvaranir Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms Allt að tuttugu stiga hiti Næsta lægð væntanleg á morgun Víðast hvar rólegt en viðvörun á Vesturlandi Bætir smám saman í vind Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Víða hvasst og gul viðvörun vegna vinds á Snæfellsnesi Spá stormi á Snæfellsnesi á morgun Dregur smám saman úr vindi og úrkomu Rigning eða súld um mest allt land Búist við austlægri átt Fimmtán stiga frost á Grímsstöðum á Fjöllum í nótt Élja- og snjókomubakkar sækja að úr vestri og norðri Vestan- og suðvestanátt með skúrum eða éljum Lægð nálgast úr suðvestri Stormur og talsvert vatnsveður á vestanverðu landinu Styttir upp með kvöldinu og frystir um mest allt land Rigning sunnantil og víða snjókoma norðanlands Tvískipt veður á landinu Skúrir um allt land Sjá meira