Albumm

Draumfarir skrifa í skýin

Ritstjórn Albumm skrifar
Hljómsveitin Draumfarir. Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson.
Hljómsveitin Draumfarir. Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson.

Draumfarir sendu á dögunum frá sér nýtt lag sem heitir Skrifað í skýin og er fáanlegt á öllum helstu streymisveitum.

Draumfarir eru þeir Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson en í október á síðasta ári gáfu þeir félagar út lagið Ást við fyrstu Seen ásamt Króla. Það lag náði gríðarlegum vinsældum og er nýja laginu spáð mikilli velgengni. 

Hér er sannkallaður poppslagari á ferðinni og mælir Albumm með að skella á play og þjóta inn í helgina.

Hægt er að fylgjast nánar með Draumförum á Facebook og Instagram.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×