Viðskipti innlent

Verslunum Geysis lokað og öllum sagt upp

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Geysir lokaði verslun sinni að Skólavörðustíg 16 í gær eftir tíu ár í húsinu. Verslunni var flutt á Skólavörðustíg 12 beint á móti Geysir Konur. Þær verslanir voru óvænt lokaðar í gær.
Geysir lokaði verslun sinni að Skólavörðustíg 16 í gær eftir tíu ár í húsinu. Verslunni var flutt á Skólavörðustíg 12 beint á móti Geysir Konur. Þær verslanir voru óvænt lokaðar í gær. Geysir

Verslanir Geysis voru lokaðar í gær á fyrsta degi febrúarmánaðar. Þá hefur öllu starfsfólki verið sagt upp störfum samkvæmt heimildum fréttastofu. Fyrirtækið hefur verið í rekstrarvanda vegna fárra ferðamanna í kórónuveirufaraldrinum. 

Fréttastofa hefur í sólarhring reynt án árangurs að ná í Jóhann Guðlaugsson, framkvæmdastjóra Arctic Shopping sem verslanirnar heyra undir. Þá hefur enginn svarað símanum í verslunum Geysis og það starfsfólk sem hefur náðst í ekki viljað tjá sig um stöðu mála og vísa á Jóhann.

Geysir rekur þrjár verslanir á Skólavörðustíg, eina í Kringlunni og aðra á Akureyri auk Fjallraven á Laugavegi sem til stóð að flytja á Skólavörðustíg. Öllu starfsfólki verslananna sem telur nokkra tugi var sagt upp um helgina samkvæmt heimildum fréttastofu. 

Verslun Geysis í Haukadal er rekin í öðru félagi Geys­ir Shops ehf og mun starfsfólki þeirrar verslunar ekki hafa verið sagt upp störfum.

Sigurjón Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, segir í samtali við fréttastofu að verslunin í Kringlunni hafi verið lokuð í gær og honum verið tilkynnt að breytingar væru í vændum. Hann hafði ekki frekari upplýsingar um verslun Geysis í Kringlunni og vísaði á Jóhann framkvæmdastjóra.

Fram kom í Morgunblaðinu í desember að hrun í komu ferðamanna hefði haft alvarleg áhrif á starfsemi Geysisverslana. Var vísað til skýrslu stjórnar í ársreikningi þar sem fram kom að starfsfólki hefði verið fækkað, sóttur hefði verið stuðningur í aðgerðarpakka ríkisstjórnar auk þess sem félagið ætti í viðræðum við viðskiptabanka sína um endurskipulagningu á skuldum þeirra.

Arctic Shopping rekur sömuleiðis verslanir Lundans, Óðinn, Thor og Jólahúsið við Ingólfstorg en þeim var öllum lokað síðastliðið vor þegar ljóst var að mikil óvissa ríkti um komu ferðamanna vegna faraldursins.

Leitast hefur verið eftir skýringum hjá Jóhanni Guðlaugssyni framkvæmdastjóra og verður gerð grein fyrir þeim þegar þau berast.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×