Innlent

Boða hertar sótt­varnir vegna skæðrar fugla­flensu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ef skæð fuglaflensa greinist í alifuglum mun Matvælastofnun leggja til við ráðherra að fyrirskipa aflífun á öllum fuglum á viðkomandi stað.
Ef skæð fuglaflensa greinist í alifuglum mun Matvælastofnun leggja til við ráðherra að fyrirskipa aflífun á öllum fuglum á viðkomandi stað. Getty/Ruslan Sidorov

Matvælastofnun mun leggja til við ráðherra að fyrirskipa hertar sóttvarnir hér á landi frá miðjum febrúar vegna skæðrar fuglaflensu, sem heldur áfram að breiðast út víða um heim. Talsverðar líkur eru taldar á því að fuglaflensan berist hingað með farfuglum og MAST segir afleiðingar smits á stórum alifuglabúum geta verið mjög alvarlegar.

Afbrigði fuglaflensuveiru með mikla meinvirkni hefur fundist í fjölmörgum villtum fuglategundum í Evrópu á síðustu mánuðum og jafnframt borist inn á alifuglabú. Þetta á m.a. við í löndum þar sem farfuglar á Íslandi hafa vetursetu eða viðkomu á leið til landsins.

Smithætta fyrir fólk talin mjög lítil

Í ljósi þessa er talin töluverð hætta á að veiran berist hingað. Fyrstu farfuglarnir koma um og upp úr miðjum febrúar og því mikilvægt að fuglaeigendur undirbúi sig undir að verja fuglana sína eins og kostur er, að því er fram kemur í tilkynningu MAST.

„Ef veiran berst inn á alifuglabú og aðra staði þar sem fuglar eru haldnir getur fjöldi fugla drepist og óhjákvæmilegt verður að aflífa alla aðra fugla á viðkomandi stöðum til að hindra útbreiðslu veirunnar. Smithætta fyrir fólk er talin mjög lítil en þrátt fyrir það er ávallt rétt að gæta smitvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum,“ segir í tilkynningu.

Matvælastofnun mun leggja til við ráðherra að fyrirskipa hertar sóttvarnir frá miðjum febrúar. Að minnsta kosti eftirfarandi reglur verða lagðar til:

  • að fuglaeigendur hafi fugla sína í húsum eða yfirbyggðum gerðum
  • að aðskilnaður milli alifugla og villtra fugla verði tryggður
  • að ekkert í umhverfi fuglahúsa laði að villta fugla
  • að fóður og drykkjarvatn alifugla sé ekki aðgengilegt villtum fuglum
  • að endur og gæsir séu aðskildar frá hænsnfuglum
  • að góðar smitvarnir séu við vatnsból
  • að hattar séu á öllum lóðréttum loftræstitúðum og fuglanet fyrir öðrum loftræstitúðum, opum og gluggum
  • að óviðkomandi fólki verði bannaður aðgangur
  • að notaður verði hlífðarfatnaður í fuglahúsunum sem eingöngu er notaður þar
  • að hendur séu þvegnar með sápu og vatni fyrir og eftir umhirðu fuglanna
  • að ekki séu teknir inn fuglar nema frá stöðum sem staðfest er að heilsufar sé gott
  • sýningarhald og aðrar samkomur með fugla munu verða bannaðar

Almenningur tilkynni dauða fugla

Ef skæð fuglaflensa greinist í alifuglum eða öðrum fuglum í haldi mun Matvælastofnun leggja til við ráðherra að fyrirskipa aflífun á öllum fuglum á viðkomandi stað til að hindra útbreiðslu veirunnar.

„Á stærstu alifuglabúunum eru tugir þúsunda fugla og er því ljóst að um mjög erfiðar aðgerðir yrði að ræða og gífurlegt tjón. Það er því til mikils að vinna að tryggja smitvarnir eins og kostur er. Fuglaeigendur sem verða varir við sjúkdómseinkenni, aukin dauðsföll eða minnkun í áti skulu tafarlaust hafa samband við eigin dýralækni eða Matvælastofnun (sérgreinadýralækni alifugla eða héraðsdýralækni),“ segir MAST í tilkynningu.

Þá er almenningur beðinn um að tilkynna til Matvælastofnunar ef villtir dauðir fuglar finnast, nema augljóst sé að þeir hafi drepist af slysförum. Best er að tilkynna með því að skrá ábendingu á vef stofnunarinnar, en líka er hægt að hringja í síma 530-4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Á vef Matvælastofnunar má finna nánari upplýsingar um fuglaflensu, viðbúnaðarstig og fleira.


Tengdar fréttir

Óttast að fuglaflensa berist til Íslands

Dýralæknir hjá Matvælastofnun óttast mikla útbreiðslu fuglaflensu í Evrópu og að flensan gæti borist til Íslands um leið og farfuglarnir fara að skila sér aftur til landsins. Fuglaeigendur eru því beðnir um að gera ráðstafanir til að verja fugla sína fyrir smiti frá villtum fuglum með því að viðhafa góðum smitvörnum og forðast að hafa nokkuð í umhverfi fuglahúsa sem laðar að villta fugla.

Matvælastofnun fylgist með útbreiðslu fuglaflensu

Fuglaflensa hefur breiðst víða um Evrópu að undanförnu og fylgist Matvælastofnun stöðugt með þróun mála og metur áhættu fyrir Ísland. Í tilkynningu frá stofnuninni eru fuglaeigendur hvattir til að huga ávallt vel að smitvörnum og búa sig undir þann möguleika að skipað verði fyrir um sérstakar smitvarnaráðstafanir.

Fuglaflensa greinst um alla Evrópu

Yfirvöld í Hollandi keppast við að halda fulgaflensu sem greinst hefur á tveimur fuglabúum í skefjum. Sama veiran, H5N8, hefur greinst bæði í hænum og villtum fuglum í norðurhluta Þýskalands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×