Innlent

Vikið frá dómgæslu eftir „óeðlileg“ skilaboð til leikmanns í kvennaflokki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Leifur Garðarsson hefur dæmt í efstu deild um árabil og verið verðlaunaður fyrir sína frammistöðu.
Leifur Garðarsson hefur dæmt í efstu deild um árabil og verið verðlaunaður fyrir sína frammistöðu. Vísir/Daníel Þór

Formaður Körfuknattleikssambands Íslands segir að dómari muni ekki dæma aftur á vegum sambandsins eftir að hafa orðið uppvís að skilaboðum sem voru „óeðlileg“ og fóru „langt yfir strikið.“

Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, segist í samtali við Vísi ekki vilja nefna dómarann á nafn en samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu er um að ræða Leif S. Garðarsson, skólastjóra við Áslandsskóla og einn reynslumesta körfuboltadómara landsins. 

„Það stendur ekki til að viðkomandi dómari dæmi aftur á vegum KKÍ,“ segir Hannes.

Skilaboð kynferðislegs eðlis

DV greindi frá því í gærkvöld að körfuboltadómari á Íslandi hefði verið rekinn fyrir að „reyna við leikmann í skilaboðaspjalli“, eins og það er orðað í fyrirsögn. 

Hannes segir að þó að samskiptin hafi átt sér stað í netheimum, utan körfuboltavallarins, stangist þau á við siðareglur KKÍ. Þau hafi þau verið „óeðlileg“ og „langt yfir strikið“. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um að ræða skilaboð kynferðislegs eðlis. 

Leifur hafði dæmt leik á föstudegi í febrúar en samkvæmt heimildum fréttastofu fékk KKÍ upplýsingar um málið á sunnudegi, tveimur dögum síðar. Í framhaldinu var hann tekinn af leik sem hann átti að dæma á mánudeginum, boðaður á fund og tilkynnt að í ljósi samskipta sinna við leikmann myndi hann ekki dæma fleiri leiki á vegum sambandsins.

Skólastjóri, þjálfari og dómari

Leifur, sem hefur verið skólastjóri í Áslandsskóla í Hafnarfirði frá árinu 2003, hefur verið áberandi í íþróttalífinu hér á landi um árabil. Hann hefur þjálfað lið í efstu deild karla í fótbolta en hann var bæði í brúnni hjá Fylki og Víkingi á sínum tíma.

Þá hefur hann þótt meðal bestu körfuboltadómara landsins í lengri tíma og oftar en einu sinni verið valinn besti dómari deildarinnar. Þá hefur hann verið gestalýsandi á íþróttaleikjum í sjónvarpi.  

Hannes segir að fleiri athugasemdir varðandi dómarann hafi ekki borist til stjórnar KKÍ, eða önnur sambærileg mál.

Blaðamaður sló á þráðinn til Leifs sem skellti á eftir að blaðamaður hafði kynnt sig.

Í siðareglum KKÍ segir meðal annars varðandi dómara:

Sýndu leikmönnum, þjálfurum og öðrum sem koma að leiknum virðingu.

Vertu til fyrirmyndar í framkomu og hegðun.

Gættu að vandvirkni, heiðarleika og samviskusemi í starfi fyrir KKÍ og að orð og athæfi samrýmist starfi og umhverfi, stað og stund.

Misnotaðu aldrei stöðu þína sem dómari.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×