Innlent

Hlé gert á hreinsunarstörfum vegna jóla og veðurspár

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Björgunarsveitarmenn og aðrir hafa verið við vinnu á Seyðisfirði í dag.
Björgunarsveitarmenn og aðrir hafa verið við vinnu á Seyðisfirði í dag. Vísir/Vilhelm

Hlé hefur verið gert á hreinsunarstörfum og viðgerðum á Seyðisfirði, eftir skriðuföll síðustu daga, vegna óhagstæðrar veðurspár og jólahátíðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannnavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi.

Þar segir jafnframt að vinna við að tryggja brak og lausamuni í dag hafi gengið vel. Unnið var að því að styrkja hús sem urðu fyrir skriðum og brak og lausamunir fjarlægðir eða fergdir.

Áfram er hættustig í gildi á Seyðisfirði og rýmingar að hluta í gildi vegna skriðuhættu.

Þar til hreinsunarstarf hefst á ný verður tíminn nýttur til þess að skipuleggja næstu skref og kærkomin hvíld fyrir viðbragðsaðila og aðra sem staðið hafa vaktina óslitið síðustu viku.

Hluti íbúa hefur snúið aftur heim en aðrir sem kusu að halda jólin annars staðar eða geta ekki snúið aftur heim þar sem húsnæði þeirra er innan rýmingarsvæða hafa fengið aðstoð við að finna húsnæði þar til óhætt verður að snúa aftur.

Vel er fylgst með því hvernig skriðusvæðið bregst við hlýnun næstu daga og verður staðan metin um leið og aftur kólnar og aðstæður verða hagstæðari. Ákvörðun um stöðu rýmingar verður tekin 27. desember.

Þjónustumiðstöð almannavarna opnar næst í Herðubreið 27. Desember kl 11, en yfir jólin er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið [email protected] og ef erindið er brýnt má hringja í 839 9931.

Tengdar fréttir

Gular viðvaranir í gildi á aðfangadag

Gular viðvaranir vegna veðurs taka gildi víða um land á morgun, aðfangadag. Búist er við talsverðri rigningu við Faxaflóa, Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Samhliða má búast við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem hefur í för með sér aukna hættu á á flóðum og skriðuföllum.

Fyrir/eftir myndband sýnir gapandi sárið í fjallinu

Þrívíddarmyndband sem starfsfólk verkfræðistofunnar Eflu sýnir glögglega hversu stór hluti fjallsins féll niður er stóra skriðan féll á þéttbýlið í Seyðisfirði síðastliðinn föstudag.

„Ég var skítlogandi hræddur eins og allir“

Bjarki Borgþórsson lögreglumaður og snjóeftirlitsmaður á Seyðisfirði lenti í skriðunni miðri og hélt að hann væri að upplifa sitt síðasta. Hann segir þetta afar áhugaverða lífsreynslu.

Asahláka morgundagsins gæti ógnað stöðugleika í hlíðunum

Þrátt fyrir að veðurútlitið fyrir daginn í dag sé með besta móti og að stöðugleiki í hlíðum Seyðisfjarðar hafi aukist til muna er veðurspáin fyrir morgundag, aðfangadag, alls ekki hagstæð. Blessunarlega er þó ekki útlit fyrir verulega úrkomu á Seyðisfirði samfara hlýindum sunnanáttarinnar.

Áfram hættustig á Seyðisfirði

Áfram er hættustig á Seyðisfirði og eru rýmingar enn í gildi að hluta til. Þetta var ákveðið á samráðsfundi Veðurstofu Íslands, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lögreglunnar á Austurlandi ásamt viðbragðsaðilum, sveitarfélagi og stofnunum í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×