Albumm

Hádramatísk hugleiðing um lífið og dauðann

Ritstjórn Albumm skrifar
Tónlistarmaðurinn Guðlaugur Jón Árnason kallar sig Bony Man.
Tónlistarmaðurinn Guðlaugur Jón Árnason kallar sig Bony Man.

The Bottom er nafnið á annarri smáskífu tónlistarmannsins Bony Man (a.k.a. Guðlaugur Jón Árnason) sem kom út fyrir skemmstu.

Lag og texti eru eftir Guðlaug en lagið er hljóðritað og útsett af Arnari Guðjónssyni í Aeronaut Studios. 

„Þetta er hádramatísk hugleiðing um lífið og dauðann,” segir Guðlaugur en hann útbjó sjálfur myndband við lagið sem hefur hlotið yfir ellefu þúsund áhorf á Youtube eftir einungis nokkra daga.

Lagið er einnig komið á Spotify en hægt er að fylgjast nánar með Bony Man á Facebook og Instagram.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×