Hvorugur ökumanna talinn alvarlega slasaður Atli Ísleifsson og Kristín Ólafsdóttir skrifa 17. nóvember 2020 14:03 Frá vettvangi slyssins. Vísir/Sunna Karen
Tveir voru fluttir á slysadeild til skoðunar eftir harðan árekstur neðst í Ártúnsbrekku um klukkan 13:30 í dag. Hvorugur er talinn hafa slasast alvarlega, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, og fór þannig betur en á horfðist í fyrstu. Annar árekstur varð í Ártúnsbrekkunni skömmu eftir hádegi, en þá á þeim hluta þar sem ekið er í austurátt. Seinni áreksturinn var mun harðari en sá fyrri en í því tilviki þurfti ekki að flytja neinn á sjúkrahús. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði skullu tveir bílar saman í seinni árekstrinum. Ökumenn beggja bíla voru fluttir til skoðunar á sjúkrahús en eru ekki taldir alvarlega slasaðir. Þó þurfti að beita klippum til að ná öðrum þeirra út. Engir farþegar voru í bílunum þegar áreksturinn varð. Mikill viðbúnaður var á vettvangi slyssins. Loka þurfti fyrir umferð um Ártúnsbrekku í vestur, sem og frá Vesturlandsvegi um Höfðabakka inn í Grafarvog. Opnað var fyrir alla umferð á ný skömmu fyrir klukkan þrjú. Þá er vinnu viðbragðsaðila lokið á vettvangi en ekki hafa fengist upplýsingar um tildrög slyssins. Hér fyrir neðan má sjá myndband af vinnu viðbragðsaðila á vettvangi í Ártúnsbrekku. Fréttin hefur verið uppfærð.
Samgönguslys Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Fleiri fréttir Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Sjá meira