iPhone 12 boðar nýja upplifun Epli 23. október 2020 08:55 Myndavélarnar í iPhone 12 hafa náð nýjum hæðum í gæðum
Tæknilegasta og sterkasta kynslóð farsíma frá Apple er komin á markað, iPhone 12. Um fjórar gerðir er að ræða, iPhone 12, iPhone 12 Mini, iPhone 12 Pro og iPhone 12 Max. Símarnir koma í verslanirnar hjá Epli þann 30. október í Smáralind og á Laugavegi. OLED skjáir eru á öllum símunum, bjartari og með dýpri myndgæðum sem skilar notandanum betri upplifun við áhorf. Skjárinn er einnig sérstaklega styrktur með ceramic Shield varnarhjúp svo símarnir þola mun meira hnjask en fyrri útgáfur. Myndavélarnar í iPhone 12 hafa náð nýjum hæðum í gæðum, með víðlinsu og uppfærðri næturstillingu sem skilar enn skarpari myndum og myndbandsupptökum. Enn hraðari örgjörvi A14 Bionic, er í iPhone 12 sem gerir tækinu kleift að framkvæma 11 trilljónir aðgerða á sekúndu! Væntingar neytenda á annað stig með Apple iPhone 12 hefur verið beðið með eftirvæntingu en hver kynslóð iPhone síma sem Apple hefur kynnt til sögunnar hefur breytt hugmyndum fólks um það hvernig við notum farsíma yfirleitt. Þessi kynslóð er þar engin undantekning. Hún boðar nýja tíma í allri notkun og upplifun notenda með tækni sem hefur ekki áður sést. iPhone 12 er með 5G sem þýðir margfalt meiri hraða en áður var mögulegt. 5G þýðir hraðara niðurhal og hraðari upphleðsla, hæstu myndgæði í myndstreymi, háskerpu í Face Time, meiri gagnvirkni í leikjaspilun og margt fleira. 5G þýðir einnig minni þörf á að tengjast opnu Wi-Fi sem þýðir meira öryggi. Til þess að spara rafhlöðuna er iPhone búinn skynjara, Smart Data mode, sem metur hvenær þörf er á 5G og skiptir sjálfur á milli. Elegant hönnun og tækni iPhone Mini er minnsti, þynnsti og léttasti 5G snjallsími í heimi en inniheldur alla sömu tækni og eiginleika iPhone 12. iPhone 12 og Mini fást í fimm litum, bláum, grænum, svörtum, hvítum og rauðum. Hönnunin er mínímalísk og elegant eins og Apple er þekkt fyrir. Pro og Pro Max fást í bláum, gylltum, silfurlit og dökkgráum. Þeir eru stærri og tæknilegri en iPhone 12 og Mini með fjórar myndavélar í stað tveggja og Dolby Vision HDR vídeóupptöku. Hægt er að taka upp efni og vinna það beint á símann. Pro og Max símarnir eru einnig með Super Retina XDR skjá sem skilar margfalt hærri upplausn. Umhverfisvænni stefna Þá hefur Apple markað sér skýra stefnu í umhverfismálum og stefnir á að hafa engin neikvæð loftslagsáhrif í framleiðslu sinni fyrir árið 2030. iPhone 12 voru hannaðir með umhverfið í huga og notaði Apple til að mynda endurunnin efni í alla segla í símanum þar á meðal í myndavélarnar. Hleðslutæki og heyrnartól fylgja ekki sem þýðir léttari pakkningar og meira magn á hvert bretti í flutningum. Apple áætlar að þessar breytingar minnki kolefnislosun um 2 milljónir tonna á ári. Upplýsingar um vörurnar frá Apple er að finna á epli.is
Tækni Lífið Apple Tengdar fréttir Apple Watch Series 6 fylgist með súrefnismettun í blóði Apple Watch Series 6 er fullkomnasta snjallúr Apple til þessa. Enn fleiri möguleikar til að fylgjast með heilsunni. Úrið fæst í Epli á Laugavegi og í Smáralind. 16. október 2020 13:47 Mest lesið „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Viðskipti innlent Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita Viðskipti innlent Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Fleiri fréttir Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira
Apple Watch Series 6 fylgist með súrefnismettun í blóði Apple Watch Series 6 er fullkomnasta snjallúr Apple til þessa. Enn fleiri möguleikar til að fylgjast með heilsunni. Úrið fæst í Epli á Laugavegi og í Smáralind. 16. október 2020 13:47