Innlent

María Meðalfellsgæs leitar að heimili

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar

Leitað er að heimili fyrir hina gæfu Maríu Meðalfellsgæs, sem virðist illa ná að fóta sig í borgarlífinu. Hún er núá tjörninni í Hafnarfirði eftir að sumarhúsaeigendur í Meðalfelli kvörtuðu undan ágengni gæsarinnar, en hefur verið tekin undir verndarvæng Dýrahjálpar Íslands og Guðmundar Fylkissonar.

„María Meðalfellsgæs kemur frá Meðalfellsvatni. Hún er að öllum líkindum alin þar upp sem ungi en þegar hún verður fullorðin þá verður hún kannski ekki eins skemmtileg lengur,“ segir Guðmundur Fylkisson, stjórnarmaður hjá Dýraverndunarfélagi Hafnarfjarðar. Hann hefur undanfarin ár skotið skjólshúsi yfir særða fugla eða fugla í vanda og svo fundið þeim nýjan stað, undir verkefninu Project Henry, sem sjá má með því að smella á meðfylgjandi hlekk.

María var færð á tjörnina í gær og hefur strax vakið athygli, en hún er einstaklega gæf og ófeimin við að biðja vegfarendur um mat og athygli. Dýrahjálp auglýsti í gær eftir heimili fyrir Maríu og viðbrögðin hafa verið góð, þó framtíðarheimilið sé enn ófundið.

„Það eru nokkrir búnir að bjóða sig fram, með misgóðar aðstæður, sem við þurfum bara aðeisn að skoða betur. Það er samt enginn með aðrar grágæsir sem hefði verið tilvalið. Við viljum helst að hún fari eitthvert sem hún er ekki ein,“ segir Sonja Stefánsdóttir, sjálfboðaliði hjá Dýrahjálp.

María er ekki vön borgarlífinu og hafa þau því nokkrar áhyggjur af henni. „Vissulega er maður svolítið hræddur um að svona gæfir fuglar verði fyrir, til dæmis ketti,“ segir Guðmundur og bætir við að hún eigi það til að fara út á götu. Hann fylgist þó vel með henni.

Þeir sem hafa áhuga á að taka Maríu að sér geta sent tölvupóst á netfangið [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×