Innlent

Ís­lendingar forðist handa­bönd og koss­af­lens vegna kórónu­veirunnar

Birgir Olgeirsson skrifar
Rögnvaldur Ólafsson, aðalvarðstjóri hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra.
Rögnvaldur Ólafsson, aðalvarðstjóri hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Vísir/Vilhelm

Aðalvarðstjóri í almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra segir þá stund runna upp að Íslendingar hætti öllum handaböndum og kossaflensi vegna kórónuveirunnar sem nú herjar á heimsbyggðina. Þetta segir Rögnvaldur Ólafsson í samtali við Vísi að loknum stöðufundi almannavarna með sóttvarnalækni vegna frétta sem berast frá Tenerife.

Greint hefur verið frá því að ítalskur læknir sem var á Tenerife sé smitaður af Covid-19 sjúkdómnum og hafi verið á hóteli á Tenerife sem Íslendingar voru á. Um er að ræða hótelið H10 Costa Adeje Palace-hótelið en þar eru sjö Íslendingar sagðir í sóttkví.

Rögnvaldur segir borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins nú vinna að því að fá þessar fregnir staðfestar. Framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Vita sagði við Vísi fyrr í morgun að sjö Íslendingar væru í sóttkví á hótelinu.

Sjá einnig: Sjö Ís­lendingar í sótt­kví á Tenerife

Ekki hefur verið gripið til sérstakra ráðstafana á Keflavíkurflugvelli að sögn Rögnvaldar umfram það að huga að handþvotti og almennu hreinlæti til að forðast smit. Meðan formleg staðfesting fæst ekki á fréttunum þá verður ekki gripið til frekari viðbragða, en það gæti breyst eftir því sem líður á daginn.

Rögnvaldur segir faraldurinn kominn á þann stað að nú ættu Íslendingar að hætta öllum handaböndum og kossaflensi. Handþvottur ætti að vera reglulegur ásamt öðrum þrifum meðan þetta gengur yfir.

Búið er að koma upp sérstökum gám við bráðamóttökuna í Fossvogi sem nýttur verður til að meðhöndla sjúklinga sem grunaðir eru um að vera smitaðir af Covid-19.Vísir/vilhelm

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur Íslendingar á Ítalíu og Tenerife til að fylgjast með fyrirmælum stjórnvalda á svæðinu og jafnframt fylgjast með fréttum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu vegna fregna af nýjum tilfellum COVID-19 veirunnar.

„Íslendingar erlendis geta skráð sig í gagnagrunn borgaraþjónustunnar til að láta vita af sér og fá sendar upplýsingar ef aðstæður breytast. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Utanríkisráðuneytið gefur almennt ekki út ferðaviðvaranir en bendir í staðinn á ferðaviðvaranir utanríkisráðuneyta grannríkjanna, sérstaklega Norðurlandanna og Bretlands. Sóttvarnalæknir ræður ferðamönnum frá ónauðsynlegum ferðum til Kína og ítölsku héraðanna Lombardia, Veneto, Emilia-Romagna og Piedmont.“

Leiðbeiningar til almennings

Handhreinsun og hreinlæti kringum augu, nef og munn ásamt öruggri meðhöndlun fæðu eru lykilatriði til að forðast smit og fækka smitleiðum í þeim tilgangi að draga úr líkum á alvarlegum veikindum.

Kórónuveiran sem veldur Covid-19 sjúkdómnum hagar sér í sumu eins og inflúensa, einkenni eru svipuð og smitleiðir áþekkar.

Einkenni líkjast helst inflúensusýkingu, hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, þreyta o.s.frv. Kórónaveiran Novel getur einnig valdið alvarlegum veikindum með neðri öndunarfærasýkingum og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4.-8. degi veikinda.

Ef einstaklingar finna fyrir veikindum er þeim bent á að hringja í síma 1700 (fyrir erlend símanúmar +354 544-4113) varðandi nánari upplýsingar og hvernig þeir eigi að nálgast heilbrigðiskerfið.

Þessir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma.


Tengdar fréttir

Sjö Ís­lendingar í sótt­kví á Tenerife

Sjö Íslendingar eru í sóttkví á H10 Costa Adeje Palace-hótelinu á Tenerife, samkvæmt upplýsingum frá Þráni Vigfússyni, framkvæmdastjóra ferðaskrifstofunnar Vita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×