Innlent

Víðtækt rafmagnsleysi vegna óveðursins

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Erfitt hefur reynst fyrir vinnuflokka Rarik að athafna sig vegna veðurhamsins.
Erfitt hefur reynst fyrir vinnuflokka Rarik að athafna sig vegna veðurhamsins. Vísir/Egill

Óveðrið hefur sett raforkukerfi landsins úr skorðum. Þannig liggja nokkrar línur Landsnets úti og yfir 5.700 notendur Rarik hafa orðið fyrir barðinu á rafmagnstruflunum. Erfitt hefur reynst fyrir vinnuflokka Rarik að athafna sig vegna veðurhamsins.

Rarik birti nýjustu upplýsingar um stöðu mála klukkan 13:30.

Suðurland

Rafmagnstruflanirnar eru umfangsmiklar sunnan til á landinu, þar sem óveðrið gekk fyrst á land. Á Suðurlandi eru truflanir á átta stöðum og rafmagnslaust er á nokkrum bæjum undir Eyjafjöllum.

Enn er rafmagnslaust í Vík og í Mýrdal. Tveir straurar brotnuðu í Víkurlínu og eru rafmagninu skammtað í Vík. Íbúar eru beðnir um að spara rafmagn.

Rafmagnslaust er við Þingvallavatn frá Miðfelli og að Mjóanesi. Þá er rafmagnslaust í Holtum, Landsveit og upp með Heklubæjum. Einnig er rafmagnslaust á nokkrum bæjum í Landeyjum þar sem 27 rafmagnsstaurar brotnuðu í óveðrinu.

Einnig er rafmagnslaust í innsta hluta Fljótshlíðar og inn í Þórsmörk. Línan á milli Kirkjubæjarklausturs og Víkur er úti en þar með er rafmagnslaust í Álftaveri, Meðallandi og hluta Skaftártungna.

Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir von á frekari truflunum þegar líða tekur á daginn. Útlit sé fyrir eldingaveðri á sunnanverðu landinu en því fylgir alltaf möguleg hætta á niðurslætti lína.

Austurland

Rafmagnslaust hefur verið í sveitarfélaginu Hornafirði vegna truflunar í flutningskerfinu. Búið er að koma rafmagni á Höfn eftir margra klukkustunda rafmagnsleysi. Enn er unnið að því að koma rafmagni á sveitirnar.

Norðurland

Á Norðurlandi er einn bær í Miðfirði rafmagnslaus og verður farið í viðgerð um leið og aðstæður leyfa.

Vesturland

Tvær truflanir eru í gangi á Vesturlandi. Álma að Húsafelli er úti þar sem tvær slár brotnuðu. Hvalfjarðarlína er úti og norðurhluti Hvalfjarðar og Svínadalur er án rafmagns. Mikil selta og hvassviðri er á svæðinu.

Við tökum fagnandi á móti ábendingum, ljósmyndum, myndböndum og frásögnum af rafmagnsleysinu á ritstjórnarpóstinum okkar ([email protected]).


Tengdar fréttir

Rafmagnstruflanir víða

Eitthvað hefur verið um rafmagnsbilanir undir Eyjafjöllum, á Rangárvöllum, í Vík og Mýrdal, Biskupstungum í Hvalfirði og Húsafelli.

Óveður skollið á í borginni

Óveðrið sem spáð hefur verið á höfuðborgarsvæðinu er farið að segja til sín. Verulega fór að bæta í vind um klukkan þrjú í nótt en veðurspáin gerir ráð fyrir vindhraða á bilinu 20-30 m/sek í borginni og mun veðrið verða verst í efri byggðum.

Óveðrið gengið inn á Vestmannaeyjar

Það sem af lifir nætur hefur lögreglan í Vestmannaeyjum sinnt fimm óveðursútköllum en mikið hefur bætt í vind eftir miðnætti. Klukkan tvö var meðal vindur í 39 m/sek og 48 m/sek í sterkustu hviðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×