Innlent

Viðvaranir í gildi á öllu landinu í dag

Eiður Þór Árnason skrifar
Kort Veðurstofunnar sýnir viðvaranirnar sem eru í gildi víðast hvar á landinu í dag.
Kort Veðurstofunnar sýnir viðvaranirnar sem eru í gildi víðast hvar á landinu í dag. Skjáskot

Appelsínugular og gular viðvaranir eru í gildi á öllu landinu í dag. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og Miðhálendi.

Veðurstofan hefur sömuleiðis gefið út gula viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og Suðausturlandi.

Vetrarfærð er í flestum landshlutum og víða éljagangur eða skafrenningur. Það er viðbúið að færð geti spillst á landinu vegna veðursins og því ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám og færð á vegum.

Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að óveðrið skýrist af 970 millibara djúpri lægð en skil frá henni ganga yfir landið í dag. Þar kemur jafnframt fram að veðrið muni ganga nokkuð hratt yfir og gilda viðvaranirnar flestar í fjórar til sex klukkustundir.

Í dag gengur í suðaustan 18 til 25 metra á sekúndu með morgninum með snjókomu og síðar slyddu eða rigningu. Suðvestan 10 til 18 metrar á sekúndu í kvöld, hvassast um landið norðvestanvert.

Skúrir en él á morgun, sunnan- og vestantil á landinu. Styttir upp austanlands í nótt. Hægari suðlæg átt og úrkomulítið annað kvöld. Hlýnandi, hiti 2 til 8 stig síðdegis, en um og undir frostmarki á morgun.

Vísir leitar að myndum og myndböndum frá lesendum sem fanga veðurofsann sem gengur nú yfir landið. Bæði er hægt að senda okkur myndirnar og myndböndin sjálf eða hlekki á síður þar sem þau er að finna á netfangið [email protected] eða í skilaboðum á Facebook-síðu Vísis.



Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á sunnudag:

Suðvestan 10-18 m/s og slydduél eða él, en þurrt og bjart á Austurlandi. Hiti 0 til 4 stig. Hægari suðlæg átt og úrkomulítið undir kvöld.

Á mánudag:

Suðaustan 10-18 en norðlægari vindur vestantil á landinu. Rigning eða slydda og hiti kringum frostmark. Vestan 15-20 og þurrt um kvöldið, en heldur hægari og dálítil él á vestanverðu landinu.

Á þriðjudag:

Allhvöss suðaustanátt og rigning eða slydda, einkum suðaustantil. Hiti 0 til 5 stig. Snýst síðar í hvassa vestanátt með éljum og frystir.

Á miðvikudag og fimmtudag:

Ákveðin suðvestanátt og gengur á með éljum, en úrkomulítið á austanverðu landinu. Frost 2 til 8 stig.

Á föstudag:

Útlit fyrir suðlæga átt og rigningu í flestum landshlutum og hlýnandi veðri.


Tengdar fréttir

Appel­sínu­gular og gular við­varanir í kortunum

Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugular og gular viðvaranir fyrir landið á morgun, laugardag, en nú þegar eru gular viðvaranir í gildi á Norðausturlandi, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og Suðausturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×