Innlent

Hafa beðið belgísk lög­reglu­yfir­völd um að­stoð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Konráðs Hrafnkelssonar hefur verið saknað síðan á fimmtudagsmorgun.
Konráðs Hrafnkelssonar hefur verið saknað síðan á fimmtudagsmorgun.

Leit að Konráði Hrafnkelssyni, Íslendings sem saknað er í Brussel, hefur ekki borið árangur. Þetta hefur Ríkisútvarpið eftir unnustu Konráðs. Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsti eftir Konráði í gær og hefur nú sent belgískum lögregluyfirvöldum formlega beiðni um aðstoð við leit að honum.

Ekkert hefur spurst til Konráðs, sem búsettur er í Brussel, frá því um klukkan níu á fimmtudagsmorgun. Um tuttugu vinir og aðstandendur leituðu hans í borginni í gær, að því er RÚV hefur eftir unnustu Konráðs. Hún segir að fjölskyldan sé einskis vísari um ferðir hans en hafi óskað eftir formlegri leit við lögregluyfirvöld hér á landi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra hefur formleg beiðni um leit að Konráði verið send belgískum lögregluyfirvöldum. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins aðstoði jafnframt aðstandendur við samskipti við yfirvöld í Belgíu, líkt og fram kom í frétt Vísis um málið í gær. Ekki fengust upplýsingar um það hvort lögreglu hér á landi hefðu borist margar ábendingar vegna málsins eftir að hún lýsti eftir Konráði.

Belgíski fjölmiðillinn HLN fjallaði um hvarf Konráðs á vef sínum í gær. Þar er rætt við Peter Paul Van Der Werff, frænda Konráðs, sem segir fjölskylduna afar áhyggjufulla. Þá er haft eftir honum að lögregla hyggist skoða upptökur úr öryggismyndavélum á svæðinu þar sem síðast sást til Konráðs.

Konráð er 178 á hæð, ljóshærður með blá augu. Hann fór á hjóli milli staða og var klæddur í gallabuxur, gráan bol og hvíta Nike-skó. Hann hafði bakpoka og derhúfu með sér og svört Marshall-heyrnatól.

Allir sem hafa upplýsingar eru beðnir um að hafa samband í gegnum netfangið [email protected].

Uppfært klukkan 19:26:

Eftirfarandi tilkynning barst frá fjölskyldu Konráðs á áttunda tímanum í kvöld:

Ekkert hefur spurst til Konráðs og er leitin komin í ákveðið ferli hjá lögreglunni hér heima og í Belgíu. Einnig erum við í góðum samskiptum við borgaraþjónustuna hjá utanríkisráðuneytinu hér heima og sendiráðið í Brussel.

Við höldum áfram að dreifa upplýsingum og höfum sett af stað auglýsingu á Instagram. Því miður hafa ekki borist neinar vísbendingar um ferðir hans.

Upplýsingar hafa einnig komið fram í fjölmiðlum úti.

Eins og fram hefur komið þiggjum við allar upplýsingar og óskast þær sendar á [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×