Innlent

Aukning á salmonellu í svínum og alifuglum á síðasta ári

Sylvía Hall skrifar
Engin aukning varð á sýkingum í fólki.
Engin aukning varð á sýkingum í fólki. Vísir/Getty

Salmonella í alifuglum og svínum var meiri árið 2019 samanborið við árið áður, en ekki var aukning á slíkum sýkingum í fólki. Þá var mikil aukning á veikindum af völdum eiturefnamyndandi E. coli í fólki þegar hring sýkinga kom upp síðasta sumar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun varðandi vöktun á súnum árið 2019, sjúkdómum eða sýkingarvöldum sem smitast á milli manna og dýra. Sýkingahrinan sem vísað er til kom upp á ferðaþjónustubænum Efstadal II í júlí í fyrra en alls greindust tveir fullorðnir og 22 börn með sýkinguna.

Fram til þessa hafði tíðni sýkingarinnar verið mjög lág hér á landi og aðeins um eitt til þrjú tilfelli höfðu komið upp árlega. Niðurstöður faraldsfræðilegrar rannsóknar á hrinunni og skimana benda til þess að bakterían sé hluti af örveruflóru íslenskra nautgripa og sauðfjár, en rannsaka þarf þó betur algengi E. coli í búfé og skerpa á fyrirbyggjandi aðgerðum.

Líkt og áður sagði var tíðni salmonellu í alifuglaeldi og sláturafurðum alifugla og svína hærri á síðasta ári en árið áður en sambærilega aukningu var ekki að finna í fólki. Í tilkynningu Matvælastofnunar kemur jafnframt fram að það bendi til þess að eftirlit með salmonellu og kampýlóbakter á fyrri stigum matvælakeðjunnar sé að skila árangri, það sé öflug hér á landi og skili auknu matvælaöryggi.

Engin marktæk aukning varð á tilfellum kampýlóbakter í fólki eða alifuglum og afurðum þeirra. Bakterían fannst þó í þremur sýnum af frosnu kjúklingakjöti á markaði en sýnin voru tekin bæði af innlendu og erlendu kjöti. Um var að ræða mjög litla bakteríumengun eða mengun undir greiningarmörkum í öllum tilfellum, en bakterían drepst að mestu í frosti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×