Heimsmarkmiðin

Verkefni vetrarins rædd á fundi nýskipaðs ungmennaráðs heimsmarkmiðanna

Heimsljós kynnir
Ungmennaráðið eftir fundinn í utanríkisráðuneytinu.
Ungmennaráðið eftir fundinn í utanríkisráðuneytinu. AKJ
Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundaði í utanríkisráðuneytinu í gær. Um var að ræða fyrsta fund nýskipaðs ungmennaráðs en þetta er í annað sinn sem skipað er í ráðið. Á þessum fyrsta fundi fengu nýir fulltrúar meðal annars kynningu frá Félagi Sameinuðu þjóðanna og frá formanni verkefnastjórnar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna auk þess sem þau ræddu verklag og verkefni ráðsins í vetur.

Á síðasta starfsári tók ungmennaráð heimsmarkmiðanna meðal annars þátt í hátíðardagskrá 1. desember, flutti ávarp á heimsþingi kvenleiðtoga og þá tóku tveir fulltrúar þátt í kynningu Íslands á innleiðingu heimsmarkmiðanna hér á landi á ráðherrafundi í New York í júlí síðastliðnum. 

Ungmennaráðið samanstendur af tólf fulltrúum, víðs vegar að af landinu, á aldursbilinu 13-18 ára.

Það fundar sex sinnum á ári og þar á meðal árlega með ríkisstjórn. Hlutverk ráðsins er að fræðast og fjalla um heimsmarkmiðin ásamt því að vinna og miðla gagnvirku efni á samfélagsmiðlum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Ungmennaráðið veitir jafnframt stjórnvöldum, í gegnum verkefnastjórn heimsmarkmiðanna, aðhald og ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna.

Hægt er að fylgjast með störfum ungmennaráðsins á Facebook síðu þess og þá er hægt að hafa samband við ráðið í gegnum [email protected].

(Frétt á vef forsætisráðuneytisins)

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.






×