Innlent

Lögregla leitar ökumanns sem ók á 10 ára dreng

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Slysið varð á þeim stað sem merktur er með X á myndinni.
Slysið varð á þeim stað sem merktur er með X á myndinni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að ökumanni fólksbíls sem ók á 10 ára dreng á Fífuhvammsvegi í Kópavogi föstudaginn 16. ágúst síðastliðinn klukkan 13:48. Málið var ekki tilkynnt lögreglu fyrr en síðar.

Í tilkynningu lögreglunnar vegna málsins segir að við áreksturinn hafi drengurinn fallið í götuna en staðið upp aftur og farið strax af vettvangi. Ökumaður bílsins náði því ekki að hafa tal af drengnum.

„Foreldrar drengsins fóru með hann á slysadeild eftir óhappið og þá komu áverkar í ljós. Ökumaður fólksbifreiðarinnar var á vettvangi í nokkrar mínútur og ræddi m.a. við aðra vegfarendur, en hann og aðrir sem kunna að lenda í slíkum aðstæðum eru minntir á mikilvægi þess að tilkynna um það til lögreglu. Meðfylgjandi er mynd af gatnamótunum þar sem slysið varð, en fólksbifreiðinni var ekið austur Fífuhvammsveg á móts við Smáralind,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Er umræddur ökumaður beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en hafi aðrir upplýsingar um ökumanninn, eða slysið, má koma þeim á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×