Makamál

Spurning vikunnar: Er fyrrverandi maki vandamál í núverandi sambandi?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Afhverju getum við upplifað fyrrverandi maka í núverandi sambandi okkar sem ógn?
Afhverju getum við upplifað fyrrverandi maka í núverandi sambandi okkar sem ógn? Getty
Í vikunni birtu Makamál pistil sem heitir Fyrrverandi bannaður aðgangur, þar sem pistlahöfundur veltir fyrir sér hvenær það er viðeigandi eða óviðeigandi að tala um fyrrverandi maka.

Fólk er misviðkvæmt fyrir upplýsingum eða sögum um fyrrverandi maka og jafnframt er fólk líka misopið að tjá sig um fyrrverandi maka.

Hvert fer ástin sem einu sinni var? Hvernig geta tilfinningar sem maki þinn hafði áður en þú komst til sögunnar truflað þig eða ógnað þinni tilvist?

Að læra að virða tilfinningalega fortíð makans getur reynst fólki miserfitt og stundum verður „fyrrverandi“ að vandamáli innan nýs sambands því annar aðilinn finnur jafnvel fyrir einhverri ógn. 

Ein helsta ástæða þess að fyrrverandi maki trufli að einhverju leiti nýtt samband er líklega sú að annar aðilinn var enn með tilfinningar þegar sambandinu lauk, en auðvitað geta ástæðurnar verið misjafnar og fólk er flest. 

Spurning vikunnar er því út frá þessum pælingum. 

Er fyrrverandi maki vandamál í núverandi sambandi?  

Makamál vilja benda á að hægt að er að senda tillögur að Spurningu vikunnar á netfangið [email protected] 


Tengdar fréttir

Bone-orðin 10: Imba elskar sjálfsörugga snillinga

Ingibjörg Finnbogadóttir, eða Imba eins og hún er alltaf kölluð, starfar sjálfstætt í kvikmyndabransanum. Þessa dagana er hún á kafi í undirbúning fyrir tvö erlend kvikmyndaverkefni sem verða að hluta tekin upp hér á landi í haust og vetur. Hér eru hin tíu Bone-orð Imbu.

69 ára og upplifir besta kynlíf ævi sinnar

Eftir að Makamál birtu umfjöllun og viðtöl um tantranudd á dögunum barst okkur póstur frá lesanda. Innihaldið var kynlífsreynslusaga hans eftir skilnað og hvernig hann komst á þann stað að vera núna, 69 ára gamall að upplifa besta kynlíf ævi sinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×