Innlent

Óska eftir vitnum að meintri árás við göngustíg á Selfossi

Birgir Olgeirsson skrifar
Karlmaður er talinn hafa veist að konu.
Karlmaður er talinn hafa veist að konu. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurlandi óskar eftir vitnum að meintri líkamsárás sem varð á eða við göngustíg á Selfossi við Hólatjörn klukkan 00:45 aðfaranótt þriðjudags en þar er karlmaður talinn hafa veist að konu.

Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að líkamsárásinni að hafa samband í síma 444 2000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Suðurlandi.

Áverkar konunnar sem talin er hafa orðið fyrir árásinni eru taldir minniháttar en engu að síður mikilvægt að upplýsa um málsatvik eins og kostur er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×