Innlent

Lögregla biður ökumanninn sem ók á drenginn að gefa sig fram

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ekið var á drenginn í Hafnarfirði um kvöldmatarleytið í gær.
Ekið var á drenginn í Hafnarfirði um kvöldmatarleytið í gær.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns dökkleitrar fólksbifreiðar sem ók á átta ára dreng á gangbraut á Hjallabraut í Hafnarfirði skömmu fyrir klukkan 19 í gær, þriðjudaginn 6. ágúst. Drengurinn hlaut líkamstjón af en ökumaðurinn ók rakleiðis af vettvangi.

Tilkynning um slysið barst kl. 18.49. Umferðarljós eru við gangbrautina sem er við íbúðir aldraðra við Hjallabraut 33 og verslun Nettó að Miðvangi 41.

Bifreiðinni var ekið austur Hjallabraut í áttina að Reykjavíkurvegi. Drengurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild.

Í tilkynningu ítrekar lögregla að mikilvægt sé að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af við atvik sem þetta, sem og að kanna hvort skemmdir hafi orðið.

„Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi.“

Lögreglan biður ökumann dökkleitu fólksbifreiðarinnar um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að  hafa samband í síma 444 1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.


Tengdar fréttir

Ók á níu ára dreng og stakk af

Ökumaður stakk af eftir að hafa ekið á níu ára dreng í Hafnarfirði í gær. Drengurinn var á leið yfir gangbraut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×