Viðskipti innlent

Bónus Trölla­hafrar inn­kallaðir vegna að­skota­hlutar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Varan sem um ræðir.
Varan sem um ræðir.
Með hliðsjón af öryggi og velferð neytenda hafa Aðföng, í samstarfi við Nathan & Olsen hf. pökkunaraðila Bónus Tröllahafra, ákveðið að taka úr sölu og innkalla vöruna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aðföngum þar sem segir jafnframt að ástæða innköllunarinnar sé að gegnsær aðskotahlutur, líklega plast, fannst í einum poka.

Varan var til sölu í verslunum Bónus á tímabilinu 15. júní til 5. júlí 2019. Athygli er vakin á því að innköllunin einskorðast við ákveðnar best fyrir dagsetningar.

Upplýsingar um vöruna:

Vöruheiti: Bónus Tröllahafrar

Strikamerki: 5690350053273

Nettóþyngd: 1 kg

Best fyrir dagsetningar: 16-08-2020 og 19-08-2020

„Viðskiptavinir Bónus sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Aðföng og Nathan og Olsen hf. biðja viðskiptavini Bónus sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar.

Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga, í síma 530-5600 eða í gegnum netfangið [email protected],“ segir í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×