Lífið

Helstu skvísur landsins selja af sér spjarirnar á Loft hostel  í dag

[email protected] skrifar
Hafrún Alda vonast til að sjá sem flesta á markaðinum í dag.
Hafrún Alda vonast til að sjá sem flesta á markaðinum í dag.
Hafrún Alda Karlsdóttir ritstjóri og stofnandi Bast magasin, er stödd á landinu og mun halda þriðja fatamarkaðinn undir formerkjum blaðsins á Loft hostel í dag. Ásamt Hafrúnu munu starfsmenn blaðsins og vinkonur hennar selja af sér spjarirnar, vintage og hönnunarvörur, en þær eiga það allar sameiginlegt að vera annálaðar fyrir fallegan og frumlegan fatastíl.

Tímaritið var á sínum tíma stofnað til að fjalla um hönnun, tónlist og menningu á Norðurlöndum en Hafrún er búsett í Danmörku. Blaðið hefur reynt að vera duglegt að fjalla um unga og upprennandi listamenn og kynna hin Norðurlöndin fyrir því sem er í gangi í listasenunni á Íslandi en það heldur úti heimasíðu ásamt því að vera virkt á samfélagsmiðlum.

„Í Kaupmannahöfn er mjög rík hefð fyrir því að halda svona markaði til að losa sig við dót og föt sem maður er hættur að nota. Þannig gefur maður flíkunum nýtt líf hjá nýjum eiganda. Við verðum með mikið af vandaðri vöru á markaðnum frá merkjum á borð við Acne, Rodebejer, Henrik Vibskov og Hope,“ segir Hafrún.

Hún segir að helsta ástæðan fyrir að byrja með Bast pop-up markaði hafi verið að undirstrika að fólk þurfi ekki allaf að kaupa allt nýtt. Þegar vörurnar eru vandaðar þá er endingin mun meiri.

,,Það er mikilvægt að fólk sé meðvitað um hvaðan varan kemur, hver býr til vöruna og hvort viðunandi vinnureglugerðum sé fylgt við framleiðsluna. Við eigum að kaupa minna og sjaldnar, en kaupa frekar vandaðar vörur sem koma til með að endast,“ bætir Hafrún Alda við að lokum.

Fatamarkaður Bast verður haldin á Loft hostel, Bankastræti 7, í dag frá klukkan 13.00-17.00.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×