Innlent

Búið að slíta viðræðum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá fundinum sem hófst klukkan 14 og stóð yfir í um hálftíma.
Frá fundinum sem hófst klukkan 14 og stóð yfir í um hálftíma. vísir/sigurjón
Búið er að slíta kjaraviðræðum á milli Samtaka atvinnulífsins og VR, Eflingar, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Fundur deiluaðila hófst klukkan 14 í dag og stóð því yfir í um hálftíma. Eftir að fundi deiluaðila lauk funduðu þeir áfram í sitthvoru lagi í húsakynnum sáttasemjara.

Fastlega má búast við því að félögin hefji nú undirbúning atkvæðagreiðslna um boðun verkfalla en það tekur um hálfan mánuð að undirbúa verkföll eins og fjallað var um í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag.

Félögin fjögur sem vísað höfðu kjaradeilunni til sáttasemjara hafa undanfarna daga lýst yfir miklum vonbrigðum með tillögur ríkisstjórnarinnar í skattamálum sem kynntar voru í byrjun vikunnar og var ætlað að liðka fyrir kjaraviðræðum.

Hér má sjá viðtal við Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra SA, í kjölfar viðræðuslitanna.

Klippa: Halldór Benjamín um viðræðuslit
Hér má sjá viðtal við Sólveigu Önnu og Ragnar Þór í kjölfar viðræðuslitanna.

Klippa: Sólveig Anna og Ragnar Þór um viðræðuslit
Hér fyrir neðan má sjá yfirlýsingu Eflingar sem birt var á vef félagsins eftir að viðræðum var slitið: 

Í dag var viðræðum Eflingar og samflotsfélaga við SA slitið hjá Ríkissáttasemjara. Þar með hefur félagið fengið heimild til að hefja verkfallsaðgerðir.

Verkafólk á Íslandi hefur of lengi þurft að þola láglaunastefnu og stjórnlausan ójöfnuð. Verkafólk hefur skapað góðæri síðustu ára með vinnu sinni. 

Atvinnurekendur hafa þó neitað að ganga að sanngjörnum kröfum Eflingar og samflotsfélaga. Verkfall er þaulreynd og lögvarin aðferð stéttarfélaga til að jafna hlut vinnandi fólks gagnvart atvinnurekendum.

Mikilvægt er að félagsmenn séu upplýstir um eftirfarandi atriði varðandi verkföll:

•    Allar verkfallsaðgerðir þarf að samþykkja í kosningu meðal þeirra félagsmanna sem verkfall tekur til. Félagið mun senda allar nauðsynlegar upplýsingar til félagsmanna varðandi verkfallskosningu með eins miklum fyrirvara og hægt er.

•    Félagsmenn eru hvattir til að láta félagið hafa réttar upplýsingar um netfang þeirra og símanúmer, til að auðvelt sé að ná sambandi við þá. Senda má póst á [email protected] og láta þar koma fram kennitölu, netfang og símanúmer. Efling fer með slíkar upplýsingar í samræmi við persónuverndarlög.

•    Félagsmenn eru hvattir til að setja sig í samband við trúnaðarmann á sínum vinnustað, þar sem trúnaðarmaður er fyrir hendi.

•    Svar við algengustu spurningum um verkföll má finna á samningavef Eflingar is

•    Félagsmenn eru að lokum hvattir til að fylgjast vel með öllum fréttum á samningavef, heimasíðu og Facebook síðu Nýjustu upplýsingar um viðræður og verkföll birtast að jafnaði fyrst á samningavefnum.

Fréttin var uppfærð klukkan 15:08.


Tengdar fréttir

Sólveig býst við viðræðuslitum

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fengu í gær í gær umboð frá samninganefndum félaganna til að slíta viðræðum við Samtök atvinnulífsins (SA) ef þess þarf.

Tekur um hálfan mánuð að undirbúa verkfall

Það tekur allajafna rúman hálfan mánuð að undirbúa stór verkföll, en verkfall má framkvæma með ýmsum hætti. Stéttarfélögin hafa í valdi sínu hversu víðtæk þau eru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×