Lífið

Leita að góðum draugasögum fyrir nýjan þátt: "Verð ekki í Ghostbustersgalla“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragnar Eyþórsson og Pétur koma saman að þáttunum.
Ragnar Eyþórsson og Pétur koma saman að þáttunum. vísir/vilhelm
Þeir Pétur Jóhann Sigfússon og Ragnar Eyþórsson munu síðar í vetur fara í loftið með nýjan sjónvarpsþátt á Stöð 2 og er um að ræða einskonar draugaþátt sem ekki hefur endanlega fengið nafn.

Pétur verður í aðalhlutverki í þáttunum og Ragnar framleiðir. Nú leita þeir að góðum tökustöðum um land allt og hvetja landsmenn til að senda inn ábendingar um draugahús eða eyðibýli úti á landi þar sem Pétur getur gist yfir nótt.

Fyrirkomulagið verður á þá leið að Pétur Jóhann mun gista með landsþekktum Íslendingi í draugahúsi yfir nótt og verður leitað að draugum.

Ábendingar um skemmtilega tökustaði má senda á [email protected] og hefjast tökur í febrúar.

Pétur mun styðjast við lýsingar landsmanna og þeirra sem senda inn ábendingar.

Gera má ráð fyrir því að aðstæður verði sirka svona í þáttunum.vísir
„Draugar eru ekki til, það er bara þannig fyrir mér,“ segir Pétur Jóhann.

„Ég er mjög svona ónæmur maður á svona framhaldslíf og hef aldrei upplifað draugagang og eitthvað sem fólk telur vera yfirnáttúrulegt,“ segir Pétur og hlakkar nokkuð til verkefnisins.

„Það er svolítið vegferðin sem ég er að fara í og spurning hvort ég eigi eftir að upplifa einhvern draugagang, í fyrsta sinn á ævinni.“

Pétur Jóhann segir að Ragnar Eyþórsson, framleiðandi, sé aftur á móti frekar næmur á svona hluti.

„Ég fór að segja honum frá að mig langaði að gista á eyðibýli þar sem enginn er búinn að búa í mörg ár og helst að fólk hefði hrakist í burtu. Ég bara með svefnpoka og kertaljós. Það er það sem er að fara gerast, ég í eina nótt með gesti. Raggi telur sig hafa upplifað svona hluti en ég verð ekki í Ghostbustersgalla í þessum þáttum, eða líklega ekki,“ segir Pétur léttur að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×