Innlent

Ætlar að beita sér fyrir menntun og nýsköpun 

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir.
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir.
„Miðað við hvernig samfélag okkar er að þróast virðist popúlisminn eiga greiða leið upp á dekk og það er ekkert annað sem vinnur betur gegn því heldur en almenn skynsemi og upplýsing,“ segir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, sem tekur sæti á Alþingi þegar það kemur saman að loknu jólaleyfi 15. janúar. Jóhanna er varamaður Ágústs Ólafs Ágústssonar sem er í launalausu leyfi fram í febrúar að eigin ósk í kjölfar áminningar sem Trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar veitti honum í lok nóvember.

„Ég var í rauninni bara á leiðinni út á völl þegar þetta kom upp og Einar [Kárason] í miðri jólabókavertíð, þannig að Ellert Schram bjargaði málunum í bili, sá eðalmaður,“ segir Jóhanna sem er stödd í heimalandi eiginmanns síns, Suður-Afríku þar sem hún mun eyða jólunum með fjölskyldunni sinni.

„Ég geri ráð fyrir að koma inn þegar þingstörf hefjast eftir áramótin og vera til 6. febrúar.“

Aðspurð um pólitískar áherslur og hvers megi vænta af henni á þingi segir Jóhanna að mikilvægi menntunar og nýsköpunar, sérstaklega fyrir lífsgæði í samfélaginu, þurfi að skína betur í gegn í áherslum stjórnvalda.

„Það er alveg gríðarlega mikilvægt að muna eftir því af hverju til dæmis fólk eins og ég komst á annað borð í háskólanám, en móðir mín var einstæð fjögurra barna móðir í Breiðholti,“ segir Jóhanna Vigdís. Hún segir hlutverk Lánasjóðs námsmanna afar mikilvægt fyrir samfélagið og hlúa þurfi betur að félagslegu hlutverki sjóðsins og samfélagslegu hlutverki háskólanna.

Jóhanna settist í fyrsta sinn á þing í október síðastliðnum þegar hún leysti Ágúst Ólaf af um vikutíma. Jóhanna er með MBA frá Háskólanum í Reykjavík en lauk bæði BA-prófi í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og meistaraprófi í menningar­fræði frá Edinborgarháskóla.

Jóhanna gegnir framkvæmdastjórastöðu hjá Almannarómi, félagi um máltækni, en hefur einnig gegnt framkvæmdastjórastöðu hjá Háskólanum í Reykjavík, stýrt Listahátíð í Reykjavík og verið forstöðumaður samskiptasviðs Straums Burðaráss.

Ekki liggur fyrir hvort Ágúst Ólafur á afturkvæmt á þing og þar af leiðandi hvort Jóhanna Vigdís muni sitja á þingi um nokkurra vikna skeið eða allt til næstu kosninga. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun forysta flokksins veita Ágústi Ólafi svigrúm til að leita sér aðstoðar og ná áttum. [email protected]


Tengdar fréttir

Tilkynning Ágústs ekki gerð í sátt við Báru

Inga Björk Bjarnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, segir Ágúst Ólaf Ágústsson, þingmann flokksins, hafa sagt sér ósatt um að tilkynning hans hefði verið skrifuð og send í fullu samráði við Báru Huld Beck.

Vill ekki svara því hvort Ágúst Ólafur eigi að segja af sér

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, vill ekki tjá sig um þann mun á sem er á yfirlýsingum Ágústar Ólafs Ágústssonar, þingmanns flokksins, og Báru Huldar Beck, blaðamanns á Kjarnanum, á því hvað gerðist á skrifstofu Kjarnans þann 20. júní síðastliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×