Skoðun

Skráning og gagnsæi við sölu bankanna eykur traust og eflir markaðinn

Páll Harðarson skrifar
Í síðastliðinni viku ritaði ég um margþættan ávinning af sölu og skráningu bankanna fyrir íslenskt efnahagslíf. En hvernig er best að standa að málum til að hámarka ávinning íslensks samfélags? Vel heppnað útboð og tvíhliða skráning Arion banka í Nasdaq kauphallirnar á Íslandi og í Stokkhólmi sýndi með óyggjandi hætti kosti þessarar leiðar. Skráning á heimamarkað greiðir aðgang að íslenskum fjárfestum og skapar aukið traust meðal erlendra fjárfesta. Með skráningu samhliða í Stokkhólmi náðist til dreifðari hóps alþjóðlegra fjárfesta en ella, en breskir og bandarískir fjárfestar voru fyrirferðarmiklir í útboðinu.

Raunhæft er að sala á hlutum í bönkunum fari fram í áföngum á nokkrum árum með hliðsjón af umfangi sölunnar. Eignarhlutur ríkisins gæti þó minnkað fljótt en Bankasýsla ríkisins álítur að til að vekja athygli allra helstu fjárfesta þurfi frumútboð að vera um tvöfalt stærra en nýlegt útboð Arion banka, eða 70-105 milljarðar króna. Auk þess að huga að markaðsaðstæðum hverju sinni, þarf ríkið að gera þrennt til að draga úr óvissu og hámarka söluverðmæti hluta sinna. Í fyrsta lagi þarf að huga að aðgerðum til að gera samkeppnisstöðu íslensku bankanna áþekka þeirri sem bankar í nágrannalöndunum búa við. Í öðru lagi þarf að liggja fyrir skýr áætlun um söluferlið og í þriðja lagi greinargóð lýsing á stefnu ríkisins sem eiganda.

Í ljósi reynslunnar er eðlilegt að fólk spyrji hvort sagan frá því fyrir fjármálahrunið geti endurtekið sig. Í því sambandi er rétt að hafa í huga að viðamiklar breytingar hafa verið gerðar á regluverki og eftirliti á fjármálamarkaði frá því á árunum fyrir hrun. Meðal þeirra eru auknar kröfur um eiginfjárhlutföll bankanna, bann gegn því að bankarnir láni gegn veði í eigin bréfum, takmarkanir á lánum til venslaðra aðila, þak á kaupaukagreiðslur, stífari reglur um gjaldeyrisjöfnuð bankanna, hertar reglur um lausafjárhlutföll, stóraukið eftirlit með fjármálafyrirtækjum og aukin áhersla á þjóðhagsvarúð ásamt mörgum öðrum breytingum sem sameiginlega styrkja umgjörð um fjármálakerfið og miða að því að girða fyrir þá hegðun sem orsakaði fall bankanna.

Sala bankanna er einstakt tækifæri til að auka gagnsæi í fjármálakerfinu og gera íslenskan hlutabréfamarkað að enn betri aflvaka framfara og hagsældar. Sala bankanna gæti einnig aukið þátttöku almennings á hlutabréfamarkaði, en í nágranna­ríkjunum hefur þátttaka almennings verið lyftistöng fyrir fjármögnun smárra og meðalstórra fyrirtækja og er því um mikilvæga hagsmuni fyrir íslenskt efnahagslíf að ræða. Hóflegar skattalegar ívilnanir til almennings vegna hlutabréfakaupa gætu riðið baggamuninn en á hinum Norðurlöndunum hafa nú þegar verið innleiddar eða stendur til að innleiða slíkar ívilnanir.




Skoðun

Sjá meira


×