Viðskipti innlent

Innkalla fiskbúðing í dós

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fiskbúðingarnir eru svipaðir þessum.
Fiskbúðingarnir eru svipaðir þessum.
ÍSAM/Ora hefur tekið ákvörðun um að taka úr sölu og innkalla tvær framleiðslulotur af fiskbúðing í dós.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að innköllunina megi rekja til hugsanlegs galla í dósunum. Þar segir jafnframt að um sé að ræða eftirfarandi vöru:

Vöruheiti: Ora Fiskbúingur í 1/1 dós

Strikamerki: 5690519000032

Nettóþyngd: 855g

Lotunúmer: L1C1561, L1C1562, L1C1563, L1C1071, L1C1072

Best fyrir (BF): 17.04.2022 og 06.06.2022

Framleiðandi: Ora ehf

Neytendum sem keypt hafa vöruna með þessu lotunúmeri er bent á neyta hennar ekki. Neytendur geta skilað vörunni til ÍSAM, Tunguhálsi 11, 110 Reykjavík eða haft samband við gæðastjóra Ora í síma 522 2770 eða á netfangið [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×