Fótbolti

Stefnum á að klára þetta með sigri í dag

Hjörvar Ólafsson skrifar
Ísland, Brasilía, kvenna, blaðamannafundur, Freyr Alexandersson, fótbolti, knattspyrna, vináttulands
Ísland, Brasilía, kvenna, blaðamannafundur, Freyr Alexandersson, fótbolti, knattspyrna, vináttulands
Ef allt gengur að óskum mun Freyr Alexandersson svífa um á bleiku skýi síðdegis í dag og fagna vel og innilega með leikmönnum sínum í íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu. Freyr hefur fengið drjúgan tíma til þess að smíða áætlun sem verður til þess að íslenska liðið leggur stjörnum prýtt lið Þýskalands að velli og koma liðinu í lokakeppni HM i fyrsta skipti í sögunni.

„Það eru allir leikmenn liðsins heilir og klárir í bátana. Við vorum komin með skýra mynd í kollinn um það hvernig við ætluðum að stilla upp byrjunarliðinu og hvernig leikskipulag verður. Það breytir litlu hvað undirbúninginn varðar að þýska liðið hafi skipt um þjálfara á milli leikja liðanna og ég tel mig vita hvernig hann mun stilla liði sínu upp og hvert uppleggið verður,“ sagði Freyr Alexandersson um toppslag Íslands og Þýskalands í undankeppni HM 2019 sem fram fer á Laugardalsvellinum í dag.

„Við höfum tekist á við stór verkefni undanfarin ár og leikmenn liðsins eru reynslumiklir á stærsta sviðinu. Þessir leikmenn hafa leikið lengi saman og ég hef stýrt þeim í töluverðan tíma og við erum því farin að læra vel inn á styrkleika hvers annars. Ég hef engar áhyggjur af því að stærð leiksins og það hversu þýðingarmikill hann er muni verða leikmönnum liðsins um megn. Það væri geggjað ef stuðningsmenn gætu mætt snemma á völlinn og hjálpað leikmönnum að fá orku á meðan þær eru að undirbúa sig fyrir leikinn. Það er heillavænlegra að stemmingin vaxi á meðan leikmenn hita upp og nái hámarki í leiknum sjálfum, en komi ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar leikurinn hefst,“ sagði hann um það hvernig leikmenn liðsins muni nálgast leikinn.

„Það er stefnan að sækja sigur, en við vitum það vel að leikurinn getur þróast í margar áttir. Það er erfitt að lesa í það hvernig leikmyndin verður, en sama hvað gerist munum við halda við það leikskipulag sem við setjum upp og sýna þolinmæði. Eðlilega niðurstaðan úr þessum leik væri þýskur sigur, en við höfum margoft sýnt að við erum langt frá því að vera eðlileg. Pressan er öll á þýska liðinu og það væri katastrófa ef þær myndu tapa. Vonandi náum við hagstæðum úrslitum og gerum það að verkum að við getum hlaðið í gott partý, sagði Breiðhyltingurinn enn fremur um verkefni dagsins. [email protected]


Tengdar fréttir

Stór útsending frá Laugardalsvelli á morgun

Ísland og Þýskaland mætast í stærsta leik íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi á morgun. Það verður risastór útsending frá leiknum á Stöð 2 Sport.

Höfum þurft að berjast fyrir tilverurétti okkar

Sigur á Þýskalandi í dag kemur kvennalandsliðinu á HM. Í samtali við Fréttablaðið ræða Sif Atladóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir um leikinn, skrefin sem KSÍ hefur tekið í jafnréttisbaráttunni og hættuna á að missa tengslin við fótboltann þegar skórnir fara á hilluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×