Ölfusárbrú lokað í viku Kjartan Kjartansson skrifar 12. ágúst 2018 11:06 Vegagerðin útilokar ekki að framkvæmdirnar taki skemmri tíma en viku. Vísir/Ernir
Umferð um Ölfusárbrú verður lokað í nótt vegna framkvæmda. Hún verður opnuð aftur klukkan sex í fyrramálið en verður svo lokað aðra nótt í heila viku. Á meðan verður akandi umferð beint um Óseyrarbrú en Ölfsuárbrú verður áfram opin gangandi vegfarendum. Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að umferð yfir brúnna verði fyrst lokað á miðnætti í kvöld til morguns. Brúnni verður svo aftur lokað klukkan 20 annað kvöld. Til stendur að steypa nýtt brúargólf aðra nótt en steypan er sögð taka nokkra sólahringa að harðna. Áætlað er að hægt verði að hleypa umferð aftur á brúnna mánudaginn 20. ágúst.Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að brúin sé orðin afar slitin og hjólför í henni orðin 40-50 millímetra djúp. Ómögulegt sé að halda brúinni opinni á meðan á framkvæmdunum stendur. Hún sé aðeins 6,1 metra breið og áætlað vinnusvæði sé 3,3 metrar að breidd. Umferðarstýring er sögð myndu tefja framkvæmdirnar og tvöfalda eða jafnvel þrefalda tímann sem þær taka. Vegagerðin útilokar ekki að framkvæmdirnar taki skemmri tíma ef veðurlag verður hagstætt.Kort sem sýnir hjáleiðir vegna lokunar Ölfusárbrúar.Vegagerðin
Mest lesið Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Innlent Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Erlent Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Innlent Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Innlent Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Innlent Segir verkföll ekki mismuna börnum Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Fleiri fréttir Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss við Þrastarlund Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar Segir verkföll ekki mismuna börnum Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Formaður Kennarasambandsins svarar gagnrýni „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Bein útsending: Frambjóðendur ræða listir og menningu Vinstri græn kynna áherslumál sín fyrir kosningarnar „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Tryggingagjald, andstæðir pólar og orkuskipti í Sprengisandi Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Sjá meira