Innlent

Tekist að manna helgina en óvissa komi til yfirvinnubanns

Sighvatur Arnmundsson skrifar
Síðasti samningafundur í ljósmæðradeilunni var árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Komi til yfirvinnubanns á miðvikudag í næstu viku þarf nýja áætlun á Landspítalanum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Síðasti samningafundur í ljósmæðradeilunni var árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Komi til yfirvinnubanns á miðvikudag í næstu viku þarf nýja áætlun á Landspítalanum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
„Róðurinn þyngist með hverjum deginum. Öryggi mæðra og barna er það sem mestu máli skiptir,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra um stöðuna í ljósmæðradeilunni.

Stjórnendur Landspítala hafa gripið til þess ráðs að beita ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins til að skylda ljósmæður til að vinna yfirvinnu. Þetta var ákveðið þar sem ljóst þótti að neyðaráætlunin sem verið hefur í gildi frá síðustu mánaðamótum dygði ekki lengur til að manna vaktir.

Spítalinn getur þó aðeins nýtt sér þessi ákvæði þangað til áður boðað yfirvinnubann ljósmæðra tekur gildi næstkomandi miðvikudag. Með þessum aðgerðum verður hins vegar hægt að manna vaktir helgarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum tókst það með naumindum með því að beita ýmsum úrræðum. Komi til yfirvinnubanns á miðvikudag muni þurfa nýja áætlun.

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar Ljósmæðrafélags Íslands, segir að ljósmæðrum sé auðvitað umhugað um að öryggi mæðra og barna verði tryggt. „Það er samt alltaf spurning hvað er hægt að láta sama fólkið vinna mikið. Hvað við getum látið jafn fáa leysa af hendi störf svona margra í langan tíma án þess að það skapi hættu.“

Katrín segir að ef til yfirvinnubannsins komi muni þurfa að sækja um undanþágur fyrir hvert tilvik. Undanþágunefnd sé starfandi sem muni taka ákvarðanir um slíkar beiðnir. „Deildirnar hafa verið keyrðar á neyðarmönnun og svigrúmið lítið. Ljósmæður af öðrum deildum hafa verið að taka vaktir en það verður ekki í boði ef og þegar yfirvinnubannið tekur gildi. Það verður ekki hægt að neyða fólk til að vinna.“

Katrín segir samningana auðvitað á ábyrgð fjármálaráðherra en að heilbrigðisráðherra hafi áður stigið inn í með fjármagn í stofnanasamning. Það sé það sem þurfi nú til. „Ábyrgðin er þeirra. Þetta er ákall um að störf okkar verði metin að verðleikum.“

Ekki hefur verið boðaður nýr samningafundur í deilunni en ríkissáttasemjari sagði eftir síðasta fund að það yrði að óbreyttu ekki gert á næstu dögum.

„Reynslan sýnir okkur að vopnin hafa verið slegin úr höndunum á okkur. Lagasetning kæmi því ekki á óvart. Ég vona innilega að til þess komi ekki og að ekki þurfi að koma til yfirvinnubannsins. Vonandi verður gripið inn í með skynsamlegum hætti áður,“ segir Katrín.

[email protected]


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×