Neitaði að innrita fjölfatlaðan einstakling og samferðamann hans Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. júní 2018 22:30 Einstaklingarnir áttu bókað far með Icelandair. Vísir/Anton Brink
Icelandair þarf að greiða þremur einstaklingum, þar af einum fjölfötluðum, bætur eftir að þeim var neitað um far með flugvél félagsins frá Hamborg til Keflavíkur þann 28. júní á síðasta ári.Alls þarf Icelandair að greiða hverjum farþega 600 evrur í skaðabætur, um 70 þúsund krónur vegna málsins samkvæmt niðurstöðu Samgöngustofu sem tók kvörtun þeirra fyrir, auk þess sem flugfélagið þarf að endurgreiða þeim flugmiða á áfangastað með öðru flugfélagi.Í kvörtuninni segir að farþegarnir hafi verið að ferðast frá Hamborg til New York og var flugið til Íslands tengiflug í ferðalagi þeirra.Afbókuðu þau hins vegar flugið þar sem einn þeirra sem kvartaði gat ekki flogið nema með sérstökum búnaði sem Icelandair gat ekki útvegað. Síðar kom þó í ljós að ekkert væri því til fyrirstöðu að hann gæti flogið í hefðbundnu flugi og var bókunin því endurvirkt fjórum dögum eftir afbókunina.Þegar þau mættu á flugvöllinn í Hamborg og hófu innritun var þeim hins vegar tjáð að bókun þeirra væri ekki skráð. Var þeim bent á að tala við almennt þjónustuborð flugvallarins til þess að ná sambandi við Icelandair. Sögðust þau engu sambandi hafa náð og var þeim þá bent á að fara aftur á innritunarborðið. Búið var að loka því þegar þau sneru aftur. Gátu þau því ekki innritað sig í flugvélina og misstu þau af fluginu.Tekið er fram að einn kvartenda sé fjölfatlaður, í hjólastól og eigi erfitt með ferðalög. Því hafi þau afráðið að kaupa far með öðru flugfélagi til þess að komast til New York. Merkt sem „no-show“Í niðurstöðu Samgöngustofu eru samskipti stofnunarinnar við Icelandair og farþeganna rakin í tengslum við kvörtunina. Í fyrsta svari flugfélagsins sagði flugfélagið að rekja mætti atvikið til þess að farþegarnir hefðu afbókað flugförin.Eftir að Samgöngustofa óskaði eftir nánari svörum kom í ljós að farþegarnir höfðu í raun endurvirkt bókunina. Þau væru hins vegar merkt sem „no-show“ eða „mættu ekki“ í bókunarkerfi flugfélagsins. Það þýddi að mati félagsins að þau hefðu ekki mætt eða mætt of seint.Þá sagði félagið ekki hafa neinar upplýsingar um farþegarnir hefðu reynt að hafa samband við flugfélagið auk þess sem að á brottfarardegi hafi þau fengið tölvupóst þar sem þeim var tilkynnt um breytingar á bókun og beiðni um að hafa samband við flugfélagið. Það hafi þau hins vegar ekki gert sem Icelandair taldi til marks um að farþegarnir hefði ekki mætt eða mætt of seint til innritunar.Gátu sýnt fram á að þau hafi verið á flugvellinum Farþegarnir fengu tækifæri til þess að svara umsögn Icelandair og létu þau fylgja með tölvupóstinn sem Icelandair sendi til þeirra þar sem tilkynnt var um breytingu á bókun þeirra. Sögðu þau skilaboðin hafa verið send um klukkustund eftir að þau lögðu af stað út á flugvöll og að þau hafi ekki orðið þeirra var fyrr en við komuna til New York.Mótmæltu þau því einnig að merkt væri við þau sem „no-show“ þar sem aðrir farþegar í innritunarröðinni með þeim hefði fengið að innrita sig. Óskaði Samgöngustofa eftir frekari gögnum frá Icelandair en engin svör bárust.Flugvöllurinn í Hamborg er einn sá umferðarþyngsti í Þýskalandi.Vísir/AFPÍ niðurstöðu Samgöngustofu í málinu segir að af gögnum málsins megi ráða að farþegarnir hafi verið staðsettir á Hamborgarflugvelli minnst 25 mínútum fyrir brottfarartíma flugsins. Var það byggt á tímastimpli á kvittun fyrir kaupum á nýjum flugmiðum. Mætti því telja verulegar líkur á því að farþegarnir hefðu verið mættir fyrr á flugvöllinn.Þá var það mat stofnunarinnar að frásögn farþeganna af vandamálum innritun væri trúanleg, ekki síst í ljósi viðbragða Icelandair sem hafi í fyrstu svörum sínum til Samgöngustofu tekið ranglega fram að flugfar þeirra hafi verið afbókað.Þessu til hliðsjónar var það því mat Samgöngustofu að farþegarnir hafi mætt til innritunar á réttum tíma en reglugerð um hvort kvartendur eigi rétt á skaðabótum vegna neitunar á fari gildir aðeins ef farþegi kemur til innritunar á tilteknum tíma.Segir í niðurstöðu Samgöngustofu að neitun Icelandair um að innrita farþeganna í flugið til Keflavíkur þann 28. júní hafi ollið þeim „verulegum óþægindum og fjárhagslegu tjóni“ sem jafna megi við neitun um far.Þarf Icelandair því að greiða hverjum farþega 600 evrur í skaðabætur auk þess sem að flugfélagið þarf að endurgreiða þeim að fullu kostnað fargjalds þess flugs sem þau keyptu til þess að komast á áfangastað.
Fréttir af flugi Mest lesið Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Innlent Rússar segja til hvers annars líkt og á tímum Stalíns Erlent Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Innlent Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Innlent Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Erlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Fleiri fréttir Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Sjá meira