Lífið

Opið fyrir skráningar í Miss Universe Iceland

Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir skrifar
Manuela Ósk og Arna Ýr saman í Las Vegas í vetur þar sem Arna Ýr keppti sem fulltrúi Íslands í Miss Universe.
Manuela Ósk og Arna Ýr saman í Las Vegas í vetur þar sem Arna Ýr keppti sem fulltrúi Íslands í Miss Universe.
Fegurðarsamkeppnin Miss Universe mun fara fram í þriðja sinn hér á landi í haust. Manuela Ósk Harðardóttir, sem er framkvæmdastjóri og eigandi keppninnar hér á landi, segir keppnina í mikilli sókn hérlendis.

Keppnin í ár verður með glæsilegra móti og enn er hægt að sækja um en umsóknarfresturinn rennur út fimmtudaginn 15. mars. Aldurstakmarkið í keppnina er 18-28 ára og allir áhugasamir umsækjendur geta sent póst á [email protected] eða leitað upplýsinga á vefslóð keppninnar, missuniverseiceland.com. Þeir sem eru áhugasamir um keppnina geta fylgst með undirbúningnum á snapchat @missuniverseice og á instagram @missuniverseiceland.

Sú stúlka sem hreppir titilinn Miss Universe Iceland mun keppa í alþjóðlegri keppni í lok árs. Aðstandendur Miss Universe eru með heilmikla góðgerðarstarfsemi og verður eitt meginhlutverk stúlkunnar sem vinnur að vera sendiherra keppninnar og sinna ýmsum góðgerðarstörfum víðsvegar um heiminn. Keppnin í ár er haldin í 67. sinn en ekki er enn ljóst hvar hún verður haldin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×