Lífið samstarf

Um Stígamót 

Stígamót er staður fyrir fólk sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi og aðstandendur þeirra. Meginviðfangsefnin eru nauðganir, sifjaspell, kynferðisleg áreitni, stafrænt ofbeldi, klám, vændi og mansal. Boðið er upp á einstaklingsráðgjöf og þátttöku í lokuðum sjálfshjálparhópum. Einnig er boðið upp á almenna upplýsingagjöf til fagfólks, hópa og til almennings.

Starfshópurinn hefur fjölbreytta menntun, en býður ekki upp á eiginlega meðferð, heldur er boðið upp á hjálp til sjálfshjálpar. Öll þjónusta við brotaþola er ókeypis og algjörum trúnaði er heitið með þeim undantekningum sem lög kveða á um. Til að fá viðtal hjá ráðgjafa er pantaður tími í síma 562?6868 eða á [email protected]. Einnig er boðið upp á netspjall og stutta símaráðgjöf. Stígamót eru til húsa á Laugavegi 170, 2. hæð.

Inga Vildís Bjarnadóttir gerði mat á árangri ráðgjafarinnar árið 2010 og í ljós kom að eftir a.m.k fjögur viðtöl á Stígamótum minnkaði þunglyndi, kvíði og streita marktækt á meðan sjálfsvirðing jókst. Það er því eftir nokkru að sækjast að leita sér hjálpar.

Þessi grein birtist fyrst í sérblaði um Stígamót sem fylgdi Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×