Tíu skref í átt að umhverfisvænni lífsstíl Rikka skrifar 18. maí 2015 14:00 Það skiptir máli fyrir heiminn eins og hann er í dag og eins og hann verður í framtíðinni að snúa við blaðinu í umhverfisvitund.nordicphotos/Getty Vísir/Getty
Um daginn sá ég frétt á netinu um konu sem hafði ekki hent frá sér rusli í bráðum tvö ár, fyrir venjulegan leikmann eins og mig þá er það kannski of mikið af því góða og jafnvel allt að því óhugsandi gjörningur. Þessi frétt sat aftur á móti í mér og var ekki hjá því komist að fara í smá sjálfsskoðun í kjölfarið og skoða niður í kjölinn ruslahefðir heimilisins. Jú, að einhverju leyti stendur fjölskyldan sig vel en við gætum gert svo miklu betur með smávægilegum breytingum, þó að það væri ekki nema bara örlítil hugarfarsbreyting. Flest heimili eru nú farin að sortera endurvinnanlegan pappír frá venjulegu heimilissorpi og setja til hliðar plast- og glerflöskur sem svo er skilað til endurvinnslu. En hvað getum við gert meira til þess að verða umhverfisvænni á einfaldan hátt? Við skulum kíkja á nokkur góð ráð.Gler í stað plasts Notum glerflöskur í stað plastflaskna undir vatnið okkar í ræktinni og í vinnunni. Það er bæði betra fyrir okkur og umhverfið.Endurnýtanlegir pokar Ekki kaupa plastpoka nema í undantekningartilfellum. Notum endurnýtanlega poka undir matvörur og önnur innkaup. Hvílum þurrkarann Eins og það er þægilegt að henda öllu í þurrkarann þá notar hann óþarflega mikið af rafmagni og styttir endingu fatnaðar. Hengjum þvottinn upp.Vísir/GettyRennandi vatnÞað er algjör óþarfi að láta vatnið renna við uppvaskið eða tannburstunina. Skrúfum fyrir þegar við erum ekki að nota vatnið. Hjólum, hlaupum Hvílum bílinn eins mikið og við mögulega komumst af með. Hjólum, hlaupum eða göngum í staðinn eða sameinumst um bílferðir. Kaffibollinn Á flestum vinnustöðum er kaffi í boði hússins og við hverja kaffivél er hrúgan öll af pappírsmálum. Notum okkar eigin bolla í vinnunni.Vísir/GettyGefðu fötin þín Gefðu fötin í fatasöfnun eða til vina ef þú ert hætt að nota þau. Barnaföt geta komið öðrum að góðum notum enda oftast lítið notuð. Borgaðu reikningana Fáðu reikningsyfirlit og reikninga í tölvupósti eða heimabankann. Beint frá býli Reyndu af fremsta megni að kaupa frá nærliggjandi framleiðendum. Bæði er varan ferskari og þú stuðlar að atvinnu í samfélaginu. Nýttu matinn Búðu til lista áður en þú kaupir í matinn svo þú farir ekki að kaupa einhvern óþarfa og endir á því að henda helmingnum. Verum meðvituð í matarinnkaupum.
Heilsa Tengdar fréttir Hugsjónir og sterk réttlætiskennd í farteskinu Andri Snær Magnason er einn fremsti og fjölhæfasti rithöfundur sinnar kynslóðar. Hann skrifar allt frá ævintýralegum barnabókum upp í pólitísk ádeilurit og berst fyrir vitundarvakningu þjóðarinnar um verndun hálendisins. 4. maí 2015 10:30 Mest lesið „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Lífið Greitt úr leyfisvandræðum og tónleikarnir fara fram í kvöld Lífið Fáir sáu íslenskar bíómyndir sem fengu 350 milljónir króna í styrk Lífið Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman Lífið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Bannað að hlæja: Stressið allsráðandi í upphafi kvöldsins Lífið Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona Lífið Skellti sér á djammið Lífið Skautadiskó til styrktar góðu málefni Lífið samstarf Frelsaði húsgögn Brynhildar Lífið Fleiri fréttir „Eins og nýfráskilin kona á fjórða búbbluglasi“ Sjá meira
Hugsjónir og sterk réttlætiskennd í farteskinu Andri Snær Magnason er einn fremsti og fjölhæfasti rithöfundur sinnar kynslóðar. Hann skrifar allt frá ævintýralegum barnabókum upp í pólitísk ádeilurit og berst fyrir vitundarvakningu þjóðarinnar um verndun hálendisins. 4. maí 2015 10:30