Innlent

Gleðileg jól við fallega skreytt jólatréð

Hugfanginn Arnar Ingi sat heillengi og dáðist að jólatrénu sem hann fékk að skreyta alveg sjálfur.
Hugfanginn Arnar Ingi sat heillengi og dáðist að jólatrénu sem hann fékk að skreyta alveg sjálfur. mynd/heiðar örn jónsson
Vísir sendir lesendum sínum jólakveðju með bestu ljósmyndunum sem sendar voru inn í jólamyndakeppni Fréttablaðsins og Vísis. Þær myndir sem unnu til verðlauna, og nokkrar fleiri til, fylgja fréttinni hér að neðan.

Fréttavakt verður á Vísi yfir hátíðarnar; á jóladag kl. 10-18 og á annan í jólum kl. 9-24. Við minnum á að hægt er að senda ábendingar og fréttaskot á [email protected].

Fréttastofa 365 sendir lesendum Vísis um allan heim sínar bestu óskir um gleðileg jól.

Heiðar Örn Jónsson er sigurvegari í jólaljósmyndakeppni Fréttablaðsins og Vísis. Sigurmynd Heiðars er af tveggja ára syni hans, Arnari Inga, þar sem hann horfir einlægum aðdáunaraugum á skreytt jólatré fjölskyldunnar. Í verðlaun fær Heiðar Örn glæsilega Nikon D-SLR myndavél með 18-105VR linsu frá Heimilistækjum.

„Við leyfðum honum alfarið að sjá um að skreyta jólatréð og svo settist hann þarna sjálfur. Hann var búinn að sitja svona í smá stund þegar ég ákvað að grípa í myndavélina. Þetta var algjörlega spontant,“ segir Heiðar Örn. Hann er Hvanneyringur en býr á Selfossi ásamt konu sinni Selmu Ágústsdóttur og sonum þeirra tveimur. 

Arnar Ingi er mikið jólabarn sem og bróðir hans Sigurður Örn. Heiðar segist ekki vera mikill ljósmyndari.

„Ég er aðallega að taka myndir af okkur fjölskyldunni, en ég hef mjög gaman af þessu.“

Alls bárust hátt í 400 myndir í jólakeppnina en þær má allar sjá hér. Lesendur gátu kosið milli mynda á Vísi og hefur dómnefnd keppninnar kosninguna til hliðsjónar. Dómnefndin var skipuð þeim Kristínu Þorsteinsdóttur ritstjóra, Fanneyju Birnu Jónsdóttur og Kolbeini Tuma Daðasyni aðstoðarritstjórum og Pjetri Sigurðssyni ljósmyndara.

Mynd Óla Hauks Mýrdal af dóttur hans fyrir jólin þykir einkar falleg og kom sterklega til greina.mynd/Óli Haukur Mýrdal
Þessi fallega mynd er tekin við Elliðavatn.mynd/Kristvin Guðmundsson
Thelma Harðardótitr og hesturinn Albína frá Möðrufellimynd/Albína Liga Liepina
Þessi systkini bræddu hjörtu landsmanna þar sem þau faðma hvort annað í hvítum jólasnjó. Myndin var vinsælust meðal lesenda Vísis í jólaljósmyndakeppninni.mynd/rán bjargardóttir
mynd/marín manda magnúsdóttir
mynd/kamma dögg gísladóttir
mynd/stefán hilmarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×