Innlent

Standa óveðursvaktina á Bylgjunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bragi, Kristófer og Þorgeir.
Bragi, Kristófer og Þorgeir.
Reykjavík síðdegis skipuð þeim Þorgeiri Ástvaldssyni, Kristófer Helgasyni og Braga Guðmundssyni verða á vaktinni fram eftir kvöldi á Bylgjunni. Þeir verða að sjálfsögðu á sínum stað frá klukkan 16 og munu halda uppteknum hætti að loknum kvöldfréttum.

Kristófer Helgason verður staddur á Selfossi og mun fylgjast grannt með gangi mála í veðrinu þar. Reiknað er með því að veðrið á Suðurlandi fari versnandi fram eftir kvöldi og verður grannt fylgst með gangi mála bæði á Bylgjunni og Vísi.

Lesendur eru hvattir til að senda ábendingar, myndir eða myndbönd úr óveðrinu á [email protected].


 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×