Innlent

Fjölmargir vilja rétta albönsku fjölskyldunni hjálparhönd

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Íbúð fjölskyldunnar er nánast tóm. Ákveðnar reglur gilda þó um gjafir til hælisleitenda.
Íbúð fjölskyldunnar er nánast tóm. Ákveðnar reglur gilda þó um gjafir til hælisleitenda. vísir/vilhelm
Íbúar í Laugarneshverfi og víðar hafa tekið sig saman og ætla að gefa albanskri fjölskyldu í hverfinu húsgögn og raftæki í innbúið. Fjölskyldan hefur dvalið hér á landi í um fjóra mánuði, en börnin þeirra þrjú fengu ekki inngöngu í skóla fyrr en í dag, eftir að fréttir um málið birtust í fjölmiðlum.

Systkinin hafa stöðu hælisleitenda en höfðu ekki fengið inngöngu í skóla þrátt fyrir að Reykjavíkurborg taki á móti börnum sem ekki hafa íslenska kennitölu til að tryggja mannréttindi þeirra. Í ljós kom að Útlendingastofnun hafði ekki sótt um skólavist fyrir börnin, en gerði það eftir að Fréttablaðið greindi frá málinu í dag.

Umræður hafa verið um málið inni á íbúahóp Laugarneshverfis í dag, þar sem íbúar vilja bjóða fram aðstoð sína, meðal annars í formi félagslegs stuðnings. Þegar hafa nokkrir haft samband við lögmann fjölskyldunnar sem mun koma skilaboðunum áleiðis. Þá hafa fjölmargir haft samband við fréttastofu í dag og óskað eftir að fá að koma til fjölskyldunnar ýmsum munum; fötum, raftækjum, leikföngum og húsgögnum, en fjölskyldan býr í nærri tómri íbúð.

Ákveðnar reglur gilda þó um gjafir til hælisleitenda, en þeim þarf að koma til Rauða krossins, sem kemur gjöfunum svo áleiðis til fjölskyldunnar.

„Það þarf í raun að fara fram eins konar þarfagreining á hvað þau vantar. Ef fólk hefur áhuga á að styðja við fjölskylduna á einhvern hátt er best að hafa samband við Hafnarfjarðardeild Rauða Krossins í gegnum netfangið [email protected],“ segir Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Rauða Krossins.

„Það er ótrúlega gleðilegt að fólk skuli vilja styðja við þessa fjölskyldu, en auðvitað eru aðrar fjölskyldur í sömu stöðu og þess vegna hvetjum við fólk til að hafa samband,“ bætir hann við.  Þá segir hann að þeir sem vilji bjóða fram félagslegan stuðning geti skráð sig sem sjálfboðaliða á heimasíðu Rauða krossins en að beinar peningagjafir þurfi að fara í gegnum fjölskylduna sjálfa.


Tengdar fréttir

Skólastjóri Laugalækjarskóla býður systurnar Lauru og Janie velkomnar

Útlendingastofnun hefur haft samband við Laugalækjarskóla og Laugarnesskóla og beðið um skólavist fyrir systkinin, Lauru, Janie og Petrit. Björn M. Björgvinsson skólastjóri Laugalækjarskóla staðfestir þetta. "Þær eru búnar að fá skólavist, það á aðeins eftir að ganga frá nokkrum formsatriðum, við þurfum örfáa daga til þess að undirbúa þær fyrir skólann,“ segir hann og segir skólann munu taka vel á móti þeim.

Börn hælisleitenda fá ekki skólavist

Þau Laura fimmtán ára, Janie þrettán ára og Petrit níu ára komu til Íslands í byrjun júní. Þau spyrja foreldra sína daglega hvenær þau fái að fara í skóla. Útlendingastofnun sótti ekki um skólavist fyrir systkinin þrátt fyrir ítrekaðar áminningar foreldra barnanna, lögfræðinga og umboðsmanns barna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×