Innlent

Ásmundur á þingi í dag: "Ég gat ekki séð að hann væri fárveikur“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Einn þingmaður situr á milli Birgittu og Ásmundar í þinginu.
Einn þingmaður situr á milli Birgittu og Ásmundar í þinginu. Vísir
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknar, lék á als oddi og gantaðist við sætisfélaga sinn Jón Gunnarsson á þingi í dag. Þetta segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata í samtali við Vísi.

„Hann var frekar hress í dag,“ segir Birgitta. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins, Þórunn Egilsdóttir, tjáði Vísi það um klukkan fjögur í dag að Ásmundur Einar væri alvarlega veikur, hafi greinst með miklar magabólgur hjá lækni í dag, hann væri rúmliggjandi á sterkum verkjalyfjum og kominn í veikindaleyfi.

Ásmundur hefur verið mikið í umræðunni eftir að hann ældi yfir farþega í flugi WOW Air til Washington fyrr í maí. Tvennum sögum fer af því hvort þar hafi verið um að kenna veikindum eða ótæpilegri áfengisneyslu. Upplifun Birgittu stangast á við það sem þingflokksformaður Framsóknarflokksins, Þórunn Egilsdóttir, tjáði Vísi um klukkan hálf fimm í dag; að Ásmundur Einar væri alvarlega veikur, hafi greinst með miklar magabólgur hjá lækni í dag, hann væri rúmliggjandi á sterkum verkjalyfjum og kominn í veikindaleyfi.

„Já, Jón Gunnarsson situr á milli mín og hans. Þeir voru að fíflast og gera grín að stjórnarandstöðumönnum,“ segir Birgitta. „Ég gat ekki séð að hann væri fárveikur. Ekki nema þá að hann sé mjög duglegur í að fela veikindi sín.“

Sjá einnig: Flugfarþegi segir þingmann hafa ælt á sig eftir ofdrykkju

Ekki getað talað við fjölmiðla sökum veikinda

„Þetta er meira en pest. Hann er fárveikur, er kominn í veikindaleyfi og er á sterkum lyfjum,“ sagði Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í samtali við Vísi um klukkan fjögur í dag. 

Að hennar sögn var Ásmundur greindur af lækni í dag og komið hafi í ljós að hann þjáist af alvarlegum magabólgum. Hann liggi fyrir mjög veikur og sé kominn í veikindaleyfi. Í frétt Vísis kemur fram að honum hafi verið skipað að  hvíla sig algerlega og mun það vera ástæðan fyrir því að hann hefur ekki svarað fjölmiðlum í dag.

Samkvæmt heimildum Vísis mætti Ásmundur Einar á þing í dag og tók þátt í atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar og tók þátt í að hafna sáttatillögu minnihlutans um dagskrárbreytingartillögu.

Sjá einnig: Þingflokksformaður Framsóknar: Ásmundur Einar alvarlega veikur

Valtur í vegabréfainnritun

Veikindi Ásmundar létu á sér kræla í ferð utanríkismálanefndar Alþingis til Washington. Birgitta var einnig í þessari ferð en fór ekki í sama flugi út og Ásmundur. Hún umgekkst Ásmund ekki mikið í ferðinni en segist aldrei hafa orðið vör við að hann þyrfti að bregða sér útaf fundi nefndarinnar til að fara á klósettið. Þó telur hún hann hafa keypt sér magameðal í ferðinni. 

Vísir náði tali af Tinnu Margréti Jóhannsdóttur, farþega í sama flugi og Ásmundur, aftur í kvöld. Hún stendur við frásögn sína. Tinna var einn þeirra farþega sem Ásmundur ældi á. Tinna segist hafa séð Ásmund neyta rauðvíns í Keflavík fyrir loftak við reykingarsvæði flughafnarinnar. Hún hafi þar að óttast það að hann myndi falla í gólfið þegar kom að vegabréfaeftirliti sökum þess hversu valtur á fótunum Ásmundur var. 

Varst þú í fluginu sem fjallað hefur verið um síðustu daga? Endilega hafðu samband við [email protected] svo hægt sé að varpa ljósi á málið.


Tengdar fréttir

WOW segir engan í áhöfn hafa brotið trúnað

Tvennum sögum fer af því hvort Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, hafi verið undir áhrifum áfengis eður ei þegar hann kastaði upp í flugi Wow Air til Washington nú á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×