Renault Megane í Limited útgáfu Finnur Thorlacius skrifar 6. mars 2015 16:42 Renault Megane Limited.
Renault Megan var bíllinn sem setti sölutölur Renault af stað svo um munaði. Hann er fyrsti bíllinn í nýrri línu Renault sem bauð upp á sjálfskiptingu, dísilvél og eyðslutölu undir 4 lítrum samkvæmt tölum framleiðanda. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og í kjölfarið fylgdu á eftir fleiri nýjar gerðir frá Renault sem fleyttu Renault í 3ja efsta sæti yfir mest seldu bíla á landinu í fyrra. Nú um helgina frumsýnir BL nýja sérútgáfu af Renault Megane Limited sem er ríkulega útbúin en á óbreyttu verði. Meðal búnaðar sem prýðir Limited útgáfuna eru nýjum 17 tommu álfelgum, ný Limited innrétting, lykillaust aðgengi, skyggðar rúður, rafknúnir aðfellanlegir speglar, tölvustýrð tveggja svæða miðstöð og Limited merkingar. Renault Limited er til í Sport Tourer með rúmgóðum skut og Hatchback 5 hurða útgáfum. Verðið er frá 3.190.000 kr. fyrir beinskiptan dísil og 3.490.000 með sjálfskiptingu.
Mest lesið „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Innlent Segir verkföll ekki mismuna börnum Innlent Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Innlent Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Innlent Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga Innlent