Menning

Heimildum safnað með aðstoð almennings

Marín Manda skrifar
Krakkar í sveit
Krakkar í sveit
Þjóðminjasafnið óskar eftir aðstoð við söfnun heimilda um þjóðhætti íslendinga.



„Það er mikilvægt fyrir okkur að vera í góðu sambandi við fólk og ná til þeirra sem vilja taka þátt í þessu með okkur í sjálfboðastarfi. Við erum ekki að senda fólki einhvers konar skoðanakannanir heldur erum við að biðla til fólks að segja frá upplifunum sínum og þekkingu, bæði úr nútímanum og fortíðinni,“segir Ágúst Ó. Georgsson, fagstjóri Þjóðháttasafns.

Þjóðminjasafn Íslands hefur nú safnað upplýsingum um þjóðhætti með spurningaskrám í meira en hálfa öld til að miðla upplýsingum og varðveita óáþreifanlegan menningararf. Nú leitar Þjóðháttasafnið að nýjum heimildarmönnum. „Næst á dagskrá er að safna heimildum um sundlaugarmenningu á Íslandi og því leitum við að heimildarmönnum á öllum aldri úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Hins vegar er mikill áhugi fyrir fólki í yngri kantinum að þessu sinni,“ segir Ágúst.

Fyrstu heimildarmennirnir voru fólk sem sent hafði inn svör við fyrirspurnum í þættinum Íslenskt mál í Ríkisútvarpinu en síðar myndaðist hópur fróðleiksfúsra einstaklinga og áhugasamra um söfnun þjóðhátta. Þannig myndaðist fljótt ákveðinn kjarni fólks sem tók að sér að svara spurningaskrám Þjóðminjasafnsins. Hópurinn hefur að sjálfsögðu endurnýjast oftar en einu sinni á rúmlega 50 árum en nú sem fyrr hefur þjóðháttasöfnunin þörf fyrir stuðning frá almenningi og að bæta við yngra fólki í þennan hóp.

Spurningaskrárnar eru aðgengilegar á heimasíðu safnsins, tjodminjasafn.is.

Nánari upplýsingar veitir Ágúst Ó. Georgsson í síma 530 2246 eða [email protected].








Fleiri fréttir

Sjá meira


×