Menning

Sex tíma óvissuferð á Suðurnes

Ugla Egilsdóttir skrifar
Sýningin verður sex tímar.
Sýningin verður sex tímar. Fréttablaðið/Stefán
„Djöfulgangur er sex klukkutíma óvissuferð út í auðn og myrkur á Suðurnesjum,“ segir Eva Rún Snorradóttir hjá Kviss Búmm Bang, sem frumsýnir nýtt leikverk í mars sem nefnist Djöfulgangur. „Eins og svo oft hjá okkur í Kviss Búmm Bang spillir það fyrir að segja frá því sem gerist á leiðinni. Ég get þó sagt að við sækjum innblástur í gamla helgisiði frá tímum mæðraveldis og í fræði Carls Jung um skuggann,“ segir Eva Rún. Ferðalagið hefst á BSÍ og því lýkur einnig á BSÍ, þaðan sem ekið verður með rútu á Suðurnes. „Gestir fá handrit hjá okkur til að fylgja, og viðeigandi klæði og vasaljós. Og svo verður fararstjóri. Matur er innifalinn í ferðalaginu,“ segir Eva Rún.

„Ætli áhorfendur þurfi ekki að vera með ansi opið hjarta til að mæta á sex klukkutíma leiksýningu?“ segir Eva Rún. „Ég vil samt taka fram að þetta fer ekki allt fram utandyra, og áhorfendur þurfa ekkert að leika. Þeir þurfa aftur á móti að vera opnir fyrir því að skoða eigið myrkur,“ segir Eva Rún. „Við hjá Kviss Búmm Bang höfum verið að rannsaka myrkrið, og hið bælda og þaggaða í okkur sjálfum. Djöfulgangur fjallar um myrkrið og mikilvægi þess að ganga í gegnum myrk tímabil og taka utan um myrkrið. Það er nauðsynlegt að fara inn í myrkrið til að verða heill aftur.“

Sýningar verða aðeins fjórar. Frumsýning er fjórtánda mars. Einungis sjö komast á hverja sýningu. Miðaverð er 8.000 krónur. Miðapantanir berist á tölvupóstfangið: [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×