Innlent

Lesendur Vísis og hlustendur Bylgjunnar velja Mann ársins 2014

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna Mann ársins 2014 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn.

Tekið er við tilnefningum á vefsvæði Bylgjunnar eða netfanginu [email protected] en frestur til að tilnefna rennur út næstkomandi miðvikudag, þann 17. desember. Ritstjórn Vísis og Reykjavík Síðdegis fara sameiginlega yfir innsendar tilnefningar og í kjölfarið hefst atkvæðagreiðsla. Einstaklingurinn verður heiðraður í árlegum áramótaþætti Reykjavík árdegis á Gamlársdag.

Í tilnefningunni þarf nafn viðkomandi að koma fram auk upplýsinga um hvers vegna viðkomandi á skilið að vera útnefndur sem Maður ársins 2014. Farið verður yfir tilnefningar með tilliti til rökstuðnings og fjölda tilnefninga sem hver og einn fær. Atkvæðagreiðsla fer svo fram á Vísi yfir jólin.

Tilnefndu þína konu eða þinn mann á vefsvæði Bylgjunnar eða á netfanginu [email protected] með fullu nafni viðkomandi og stuttum rökstuðningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×