Innlent

Allt á floti á götum úti og á Landspítalanum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mikill vatnselgur var á götum höfuðborgarsvæðisins í nótt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og myndbandi sem ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins tók. Myndbandið er tekið á Nýbýlavegi í Kópavogi í nótt.

Þá flæddi vatn inn á Landspítalann en myndbandið hér að neðan var tekið á Hjartagátt spítalans.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu voru ekki margir ökumenn sem lentu í miklum vandræðum vegna vatnselgsins en eitthvað var þó um bíla sem urðu fyrir gangtruflunum þar sem þeir þurftu að fleyta sér.

Slökkviliðið fór í 9 útköll vegna vatnsleka í nótt og var það aðallega í heimahúsum. Ekkert stórtjón varð þó að það sé auðvitað alltaf mikið tjón fyrir þá sem lenda í að vatn flæði inn hjá þeim.

Náðir þú myndum eða myndböndum í óveðrinu í nótt? Sendu okkur þær endilega á netfangið [email protected].

Eins og sjá má var mikill vatnselgur á götum úti.Vísir/Andri Marinó
Mikið krap og vatn var á götum í nótt.Vísir/Andri Marinó



Fleiri fréttir

Sjá meira


×