Innlent

Bíll við bíl við bíl á Vatnsenda

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
mynd/Skjáskot
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi er umferðarteppa við Vatnsenda. Í myndbandinu, sem tekið var upp klukkan níu í morgun, sést hversu hægt umferðin hreyfist. Ökumenn voru lengi fastir í umferðinni og bárust blaðamanni fregnir af því að einhverjir hefðu verið fastir í hátt í klukkutíma.

Á samfélagsmiðlum má sjá frásagnir fólks af slæmri færð og mikilli umferðarteppu.

Hér að neðan má sjá myndbandið úr Vatnsendahverfinu.



Lentir þú í umferðarteppu eða öðrum vandræðum vegna veðursins í morgun? Láttu okkur vita á [email protected].


Tengdar fréttir

Snjór og hálka á götum Reykjavíkur

Hálka, snjóþekja og óveður er víðast hvar á norðausturströndinni. Ökumenn eru hvattir til að fara ekki í umferðina á lélegum dekkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×