Vilja skattaafslátt fyrir þá sem ferðast langa leið til vinnu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 18. september 2014 09:15 Elsa Lára Arnardóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Vísir / Pjetur
Fimm þingmenn Framsóknarflokksins vilja að fólki sem greiða þarf háan ferðakostnað til og frá vinnu verði veittur afsláttur af tekjuskatti. Hópurinn leggur til við Alþingi að fela Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðgjafa, að undirbúa og leggja fram lagafrumvarp þess efnis. Þingmennirnir vilja að í frumvarpinu verði ráðherra veitt heimild til að útfæra og setja reglur um skattaafsláttinn. Þessi skattaafsláttur á einungis að gilda fyrir þá sem sækja vinnu innan tiltekinna og skilgreindra atvinnusvæða innan lands. Ekki er fjallað um í þingsályktunartillögu þingmannanna hvaða svæði það eigi að vera. Elsa Lára Arnardóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Auk hennar skrifa Jóhanna María Sigmundsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Haraldur Einarsson nafn sitt við hana. Allt eru þetta þingmenn í landsbyggðarkjördæmum en tillögurnar eru nær sérsniðnar fyrir fólk á landsbyggðinni. Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfisráðherra, flokksbróðir þeirra sem leggja fram tillöguna, hefur flutt samskonar tillögu þrisvar áður en án árangurs.
Alþingi Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Erlent Fleiri fréttir Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Sjá meira