Innlent

Oddvitaáskorunin - Við ætlum að finna heitt vatn

Gleðin er í fyrirrúmi hjá Friðþjófi og félögum í Snæfellsbæ.
Gleðin er í fyrirrúmi hjá Friðþjófi og félögum í Snæfellsbæ.
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Friðþjófur Orri Jóhannsson leiðir Nýja listann í Snæfellsbæ í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Komið þið sæl.

Friðþjófur Orri Jóhannsson heiti ég og er oddviti Nýja listans í Snæfellsbæ.


Ég er kallaður Fitti og er skipstjóri á Særif SH. Áhugamálin mín eru tónlist, veiði og ferðalög.

Ég er í sambúð og á eina stelpu, hana Ingu Dís mína. Ég er menntaður skipstjórnarmaður (2. stig) úr Tækniskólanum.

Mér líður best í sumar sól með gargandi kríunum í Rifi með stelpunum mínum.


YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Arnarstapi.

Hundar eða kettir?

Er með ofnæmi, kannski fiskur.

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Þagar Gullið mitt kom í heiminn.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Pizza og kfc.

Hvernig bíl ekur þú?

Dodge magneum.

Besta minningin?

Usss...Þær eru svo margar, t.d. þegar gullið mitt fædist.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Já oft. Aðallega fyrir þokuljós.

Hverju sérðu mest eftir?

Að hafa ekki farið í háskólanám.

Draumaferðalagið?

Mig langar til LA.

Hefur þú migið í saltan sjó?

Ég geri það á hverjum degi. Er sjómaður.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Það er að vera oddviti Nýja listans, en samt gaman.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já oft.

Hverju ertu stoltastur af?

Dóttir minni.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu [email protected].




Fleiri fréttir

Sjá meira


×