Innlent

Oddvitaáskorunin - Við lofum engu nema því að vera heiðarleg

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir leiðir lista Bjartrarí framtíðar á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

„Ég heiti Vilborg Þórunn og er kennari, leikjafrömuður og leiðsögumaður. Ég hef gaman af lengri og styttri gönguferðum um óbyggðir jafnt sem byggð ból. Mig langar til að sjá Akranes blómstra enn frekar.

Hér er gott samfélag sem stendur á traustum grunni en það er hægt að gera enn betur. Hér eru mörg tækifæri til framfara og ég er sannfærð um að bærinn eigi eftir að vaxa sem ferðamannabær og útivistarparadís. Í framtíðinni verður Akranes enn eftirsóttari staður til búsetu vegna fjölbreyttra atvinnutækifæra, framúrskarandi skóla á öllum stigum og góðrar þjónustu við allskonar fólk. Ég vil vinna með ykkur að því að þessi framtíðarsýn verði að veruleika.“

YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Ísland eins og það leggur sig er fallegur staður. En ef ég á að taka einn stað sérstaklega út þá er það Ásbyrgi.

Hundar eða kettir?

Kettir eru ómissandi á hverju heimili og ég er svo heppin að búa með einum slíkum. Ef ég byggi í sveit myndi ég vilja eiga hund líka, og þá helst fleiri en einn.

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Líklegast þegar ég fæddist. Man þó ekki ekkert eftir því.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Gott sushi er í miklu uppáhaldi og svo klikkar kjúklingur sjaldan.

Hvernig bíl ekur þú?

Skoda Fabia Ambiente árg. 2007.

Besta minningin?

Heyskapur á sólríkum sumardögum í Staðarsveitinni þegar ég var barn.

Hefur þú verið tekin af lögreglunni?

Nei. En ég hef tvisvar komist í kast við smásmugulegar hraðamyndavélar.

Hverju sérðu mest eftir?

Stærsta eftirsjáin er of persónuleg fyrir þennan vettvang en til að svara spurningunni þá sé ég alveg rosalega eftir öllum Strumpabókunum mínum sem ég týndi í einhverjum flutningunum.

Draumaferðalagið?

Sigling á seglskútu um framandi höf.

Hefur þú migið í saltan sjó?

Já reyndar. Bæði beint og óbeint.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Heimsóknin í jarðböðin í Yangmingshan þjóðgarðinum í Taiwan er það eitt það furðulegasta sem ég hef upplifað.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já, ég viðurkenni yfirleitt mín mistök. En það tekur stundum svolítinn tíma fyrir mig að gangast við þeim.

Hverju ertu stoltust af?

Vinnunni minni og fólkinu mínu.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu [email protected].


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×